Þórsstelpur leika til úrslita í VÍS bikarnum í körfubolta

Stelpurnar í Þór leika til úrslita um VÍS Bikarinn í körfubolta n.k laugadag.  Mynd Páll Jóhannesson
Stelpurnar í Þór leika til úrslita um VÍS Bikarinn í körfubolta n.k laugadag. Mynd Páll Jóhannesson

Lið Þórs tryggði sér sæti í úrslitaleik bikarkeppni KKÍ í kvöld þegar þær lögðu sterkt lið Grindavíkur með 79 stigum gegn 75 stigum Grindavikurstelpna í hörkuleik sem fram fór Laugardalshöllinni.

Grindavik sem af  flestum spekingum var spáð nokkuð öruggum sigri leiddi leikinn í upphafi en  Þórsstelpur voru aldrei langt undan.  Þær komust svo yfir þegar nokkuð var liðið á annan leikhluta og létu forustuna aldrei af hendi eftir það. 

Vilji og löngun, í bland við töffaraskap þegar það átti við ásamt þvi sem liðið er skipað virkilega góðum leikmönnum sem gáfu bókstaflega allt í leikinn skilaði þessum sigri. 

Ekki má gleyma þætti þjálfara liðsins Daníels Andra Halldórssonar sem er 29 ára og á öðru ári sem meistaraflokks þjálfari en sá drengur virtist hafa öll svör fyrir sitt fyrir sitt lið við öllum ,,spurningum” Grindvíkinga.

Það er erfitt að gera upp á milli Þórsstelpna í leiknum, liðsheildin var sterk og flestar lögðu þær lóð sín á vogarskálarnar.  Ásamt því sem stuðningur áhorfenda  var liðinu dýrmætur.

Stiga­hæst í liði Þórs var Lore Devos með 30 stig og kannski var hún  fremst með jafningja?   Hin 15 ára gamla Emma Karólína Snæbjarnardóttir, 15 ára takið eftir  lagði heldur betur sitt  fram þegar á þurfti og spilaði eins og ,,reynsluhestur“

Á laugardaginn er það lið Keflavikur sem bíður  Þórsliðsins, aftur verður  það mat  sérfróðra að  Þórsliðið sé litla liðið.   Ekki dettur mér í hug að afskrifa möguleika  þessa öfluga  liðs sem búið er að nostra við að smíða í Þorpinu.   

Ég er heldur ekki sérfróður bara mjög hrifinn af sterkri liðsheild Þórskvenna.


Athugasemdir

Nýjast