Söngveisla í Glerárkirkju á sumardaginn fyrsta

Það verður boðið til sannkallaðrar söngveislu í Glerárkirkju á morgun sumardaginn fyrsta.    Mynd Gl…
Það verður boðið til sannkallaðrar söngveislu í Glerárkirkju á morgun sumardaginn fyrsta. Mynd Glerárkirkja

Tíunda kóramót eldri borgara á Norðurlandi fer fram á morgun sumardaginn fyrsta. Fyrsta kóramót eldri borgara var haldið á Húsavík á lokadaginn 11 maí 2002 með þátttöku fimm kóra sem komu frá Húsavík, Akureyri, Dalvík, og Hrísey, Siglufirði og  Skagafirði.

Nú er komið að því að halda  mótið á Akureyri,   og það er á  morgun sem boðið verður til sannkallaðrar söngveislu sem hefst kl. 17  i Glerárkirkju.

Kórarnir munu syngja hver fyrir sig og einnig saman og þá má gefa sér að vel verður tekið á því.  Það má búast við frábærum tónleikum, kórastaf á Norðurlandi er með miklu ágætum og á morgun verður ,,uppskeruhátíð“ þessara kóra.

Sem fyrr sagði hefjast tónleikarnir kl 17 á morgun sumardaginn fyrsta, verð miða er hóflegt  kr. 3000 en vekja þarf athygli  gesta á því að  engin posi verður á staðnum.


Athugasemdir

Nýjast