KA er Íslandsmeistari í blaki kvenna 2023-24

KA stelpur Íslandsmeistarar i blaki þriðja árið í röð     Mynd ka.is
KA stelpur Íslandsmeistarar i blaki þriðja árið í röð Mynd ka.is

KA er Íslandsmeistari í blaki kvenna eftir stórkostlegan 2-3 endurkomusigur að Varmá. Stelpurnar lentu 2-0 undir en sneru enn einum leiknum sér ívil og standa uppi sem Íslandsmeistarar þriðja árið í röð!

Leikurinn var eins að hinir þrír í þessari rimmu félagana, hart barist og ekkert gefið eftir.  Bæði lið voru mjög vel að þvi komin að leika til úrslita og blakið sem sýnt var í úrslitunum oft á tíðum frábært og báðum liðum til sóma.   Lið Aftureldingar er einstaklega gott  í þvi að bjarga sér úr vandræðum. virkilega gott blaklið þar á ferð.

KA vann í dag  þriðja Íslandsmeistaratili sinn i röð sem verður að teljast frábært, liðið er gríðarlega öflugt, vörnin er öflug og sóknir liðsins eru ótrúlega beittar.

Þær eru svo sannarlega vel að titlinum komnar KA stelpur  og ástæða til þess að óska þeim,  þjálfara þeirra Miguel Mateo Castrillo, og stjórn blakdeildar  innilega til hamingju með glæsilegan árangur. 


Athugasemdir

Nýjast