Helgi magri í síðasta sinn

Síðasta sýning á leikritinu Helgi magri verður fimmtudagskvöldið 22. september kl. 20 í Samkomuhúsinu. Helgi magri hefur fengið frábærar viðtökur áhorfenda og fína dóma í Menningunni í Kastljósi, Vikudegi og á Akureyri.net svo eitthvað sé nefnt.

Hið kómíska, kosmíska og kærleiksríka spunaverk Helgi magri var fyrsta sviðsetning Menningarfélags Akureyrar á þessu starfsári en sýningartíminn var snarpur, sex sýningar, í september. Akureyringar og aðrir sem vettlingi geta valdið eru hvattir til að drífa sig í leikhús því nú eru síðustu forvöð að sjá þessa „frumlegu og kærleiksríku sýningu“ eins og Hlín Agnarsdóttir komst að orði.


Athugasemdir

Nýjast