13. mars - 20. mars - Tbl 11
-
mánudagur, 18. mars
Húshitunarkostnaður í Grýtubakkahreppi sá þriðji hæsti á landinu
„Við teljum að þessar kröfur séu mjög hógværar,“ segir Þröstur Friðfinnsson sveitarstjóri í Grýtubakkahreppi. Sveitarstjórn hefur farið fram á að gjaldskrá Reykjaveitu, þaðan sem íbúar sveitarfélagsins fá heitt vatn verði ekki meira en 30% hærri en aðalveitu Norðurorku frá 1. janúar árið 2026. Gjaldskráin er um þessar mundir um 60% hærri en sú sem notendur aðalveitunnar greiða, m.a. Akureyringar. -
mánudagur, 18. mars
Eitt elsta félag bæjarins lagt niður
Á aðalfundi kvenfélagsins Hlífar 12. mars 2024 var samþykkt að leggja félagið niður. 4. febrúar 1907 var kvenfélagið Hlíf stofnað af nokkrum konum í Akureyrarkaupstað. Aðalmarkmið félagsins fyrstu árin var „að hjúkra og aðstoða fátæka og örvasa gamalmenni“ eins og fram kemur í fyrstu lögum félagsins.- 18.03
-
mánudagur, 18. mars
Kynning Wolt hefur heimsendingar á Akureyri
Hin vinsæla heimsendingarþjónusta Wolt stækkar enn frekar á Íslandi og opnar á Akureyri í vikunni. Eftir farsælt ár í Reykjavík og á Suðvesturlandi nær þjónustan nú til Norðurlands. Frá og með 20. mars eru bláu sendlarnir tilbúnir að hefja afhendingu vara frá veitingastöðum og verslunum til fólks á Akureyri. Wolt hefur samið við meira en 30 sendla á Akureyri sem sjá um heimsendingarnar. Fyrirtækið býður upp á vettvang sem sameinar staðbundnar verslanir og veitingastaði, sendla og viðskiptavini og gerir þér mögulegt að fá nánast það sem þú vilt sent heim á um 40 mínútum.- 18.03
-
mánudagur, 18. mars
Framsýn - Ánægja með samninginn atkvæðagreiðslu lýkur n.k. miðvikudag
Framsýn stóð fyrir kynningarfundi í gær um nýgerðan kjarasamning SA og SGS sem Framsýn á aðild að fyrir sína félagsmenn á almenna vinnumarkaðinum. Góðar og miklar umræður urðu um samninginn. Formaður Framsýnar fór yfir helstu atriði samningsins og síðan var opnað fyrir fyrirspurnir.- 18.03
-
sunnudagur, 17. mars
Ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun
Ný námsleið verður í boði næsta haust innan hjúkrunarfræðideildar Háskólans á Akureyri í samstarfi í félagsráðgjafadeild Háskóla Ísland. Þetta er framhaldsnám á meistarastigi, 60 ECTS og ber heitið Ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun. Megininntak námsins er sérhæfing á sviði heilabilunar með áherslu á persónumiðaða, heildræna og samþætta ráðgjöf og þjónustu við fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra auk ráðgjafar og fræðslu til faghópa, almennings og stofnana. Námið er þverfræðilegt enda krefst ráðgjöf í heilabilun víðrar sýnar og samstarfs margra aðilasegir í tilkynningu. Mikið samfélagslegt gildi Námsleið þessi hefur mikið samfélagslegt gildi þar sem hún er unnin í samræmi við stefnumótun og aðgerðaráætlun stjórnvalda í málefnum fólks með heilabilun. Mikil þörf er á aukinni menntun og fagþekkingu í þessum málefnum í ljósi ört vaxandi hóps með heilabilun og er mikilvægt fyrir heilbrigðis og velferðarkerfið í heild. Starfsvettvangur ráðgjafa í málefnum fólks með heilabilun er talinn víðtækur en þar á meðal eru stjórnunar og ráðgjafastörf innan heillbrigðis-og velferðarkerfisins eins og innan heilbrigðisumdæma, minnismóttaka, heilsugæslu, heimahjúkrunar, félagslegrar heimaþjónustu, dagþjálfunar og hjúkrunarheimila.- 17.03
-
sunnudagur, 17. mars
Lokaorðið - Bölmóðssýki og brestir.
Í gegnum tíðina höfum við lært margt varðandi góða líkamlega heilsu. Við hættum að reykja, erum dugleg að hreyfa okkur og vitum allt um hollt mataræði. Við lítum vel út hið ytra, eldumst lítið og borðum lífrænt.- 17.03
-
laugardagur, 16. mars
Ný kvikmynd um Stellurnar frumsýnd í dag
Áhugahópurinn um varðveislu sögu togara Ú A lætur sér ekki nægja að fjármagna smíði líkana af togurunum því aukin heldur stendur hópurinn fyrir þessari kvokmynd sem hér má sjá fyrir neðan . Myndin segir söguna frá kaupunum á Stellunum frá Færeyjum Það voru þeir Sigfús Ólafur Helgason og Trausti Guðmundur sem unnu myndina fyrir hópinn sem er leiddur eins og fram hefur komið af Sigfúsi. Vefur Vikublaðsins fékk góðfúslegt leyfi fyrir birtingu myndarinnar, gjörið svo vel ! https://www.facebook.com/share/v/FrQsVmZaxYvEXUEx/?mibextid=K35XfP- 16.03
-
laugardagur, 16. mars
Að vera ég sjálf
„Ég fíla svo vel að vera frónari, og búa á Íslandi“, var oft sungið þegar ég var lítil og ég gæti sem best sungið þetta lag flesta daga. Mér finnst fínt að vera í frostpinnafélaginu, elska norðangolu og rigningu og finnst veturinn ekkert svo hræðilegur. Mér leiðast reyndar umhleypingar, saltpækill á götum, sullumbull og hálka til skiptis og væri eins og margir aðrir, alsæl með froststillur vikum saman.- 16.03
-
laugardagur, 16. mars
Listaverk unnin úr mosa á Kaffi Lyst
Listakonan Marzena er heilluð af náttúrunni, en hún verður með sýningu sem henni tengist í Kaffi Lyst í Lystigarðinum á Akureyri dagana 23. og 24. mars næstkomandi. „Mosalistin mín byrjaði sem sambland af ást til náttúrunnar og áhuga á handverki. Mosaskreytingar eru mjög einstakar og fallegar innanhússkreytingar. Það er eitthvað einstakt og róandi við það. Mosalist er mjög vinsæl í Evrópu líka á opinberum stöðum, sérstaklega hótelum, heilsulindum, skrifstofum, snyrtistöðum, veitingastöðum,“ segir Marzena í tilkynningu. Ég nota nokkrar tegundir af mosa sem er varðveittur í glýseríni og litarefnum. Hann er ekki lifandi lengur en heldur fersku útliti og stinnleika. Mosinn þarf ekkert viðhald, þarf bara að halda honum frá hitagjafa, beinu sólarljósi og vatni. Þegar loftraki er lágur verður mosinn stífari en þegar raki hækkar verður hann aftur þéttur og mjúkur,“ segir hún enn fremur. Marizena flytur inn mosa frá Póllandi en upprunalega kemur hann frá Ölpunum, Finnlandi og Kaukas- 16.03
Aðsendar greinar
-
Gunnar Níelsson skrifar
Lokaorðið - Bölmóðssýki og brestir.
Í gegnum tíðina höfum við lært margt varðandi góða líkamlega heilsu. Við hættum að reykja, erum dugleg að hreyfa okkur og vitum allt um hollt mataræði. Við lítum vel út hið ytra, eldumst lítið og borðum lífrænt. -
Inga Dagný Eydal skrifar
Að vera ég sjálf
„Ég fíla svo vel að vera frónari, og búa á Íslandi“, var oft sungið þegar ég var lítil og ég gæti sem best sungið þetta lag flesta daga. Mér finnst fínt að vera í frostpinnafélaginu, elska norðangolu og rigningu og finnst veturinn ekkert svo hræðilegur. Mér leiðast reyndar umhleypingar, saltpækill á götum, sullumbull og hálka til skiptis og væri eins og margir aðrir, alsæl með froststillur vikum saman. -
Sigrún V Heimisdóttir sálfræðingur og framkvæmdastjóri skrifar skrifar
Ferðalag til bata
Á eitthvað að ferðast í ár? Svörin geta verið á ýmsa vegu, falið í sér drauma um framandi lönd og ókunnar slóðir, en líka væntingar um kyrrð og ró í heimahögunum. Yfirleitt eru ferðalög skipulögð fram í tímann og hluti af því að vera í fríi frá daglegum skyldum og störfum, sem við leitumst við að njóta með okkar nánasta og besta fólki. -
Jón Hjaltason skrifar
Tjaldsvæðið – Villigötur
Svo ég segi það strax þá óttast ég að í uppsiglingu sé meiriháttar slys á tjaldsvæðisreitnum við Þórunnarstræti. Arkitektastofan Nordic – office of Architecture hefur skilað tillögum að uppbyggingu á reitnum sem hafa fallið í góðan jarðveg hjá meiri hluta skipulagsráðs Akureyrarbæjar
Mannlíf
-
Ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun
Ný námsleið verður í boði næsta haust innan hjúkrunarfræðideildar Háskólans á Akureyri í samstarfi í félagsráðgjafadeild Háskóla Ísland. Þetta er framhaldsnám á meistarastigi, 60 ECTS og ber heitið Ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun. Megininntak námsins er sérhæfing á sviði heilabilunar með áherslu á persónumiðaða, heildræna og samþætta ráðgjöf og þjónustu við fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra auk ráðgjafar og fræðslu til faghópa, almennings og stofnana. Námið er þverfræðilegt enda krefst ráðgjöf í heilabilun víðrar sýnar og samstarfs margra aðilasegir í tilkynningu. Mikið samfélagslegt gildi Námsleið þessi hefur mikið samfélagslegt gildi þar sem hún er unnin í samræmi við stefnumótun og aðgerðaráætlun stjórnvalda í málefnum fólks með heilabilun. Mikil þörf er á aukinni menntun og fagþekkingu í þessum málefnum í ljósi ört vaxandi hóps með heilabilun og er mikilvægt fyrir heilbrigðis og velferðarkerfið í heild. Starfsvettvangur ráðgjafa í málefnum fólks með heilabilun er talinn víðtækur en þar á meðal eru stjórnunar og ráðgjafastörf innan heillbrigðis-og velferðarkerfisins eins og innan heilbrigðisumdæma, minnismóttaka, heilsugæslu, heimahjúkrunar, félagslegrar heimaþjónustu, dagþjálfunar og hjúkrunarheimila. -
Ný kvikmynd um Stellurnar frumsýnd í dag
Áhugahópurinn um varðveislu sögu togara Ú A lætur sér ekki nægja að fjármagna smíði líkana af togurunum því aukin heldur stendur hópurinn fyrir þessari kvokmynd sem hér má sjá fyrir neðan . Myndin segir söguna frá kaupunum á Stellunum frá Færeyjum Það voru þeir Sigfús Ólafur Helgason og Trausti Guðmundur sem unnu myndina fyrir hópinn sem er leiddur eins og fram hefur komið af Sigfúsi. Vefur Vikublaðsins fékk góðfúslegt leyfi fyrir birtingu myndarinnar, gjörið svo vel ! https://www.facebook.com/share/v/FrQsVmZaxYvEXUEx/?mibextid=K35XfP -
Merkri sögu iðnaðarbæjarins verður haldið á lofti
„Iðnaðarsaga Akureyrar er merkileg og við munu leggja okkar metnað í að segja hana,“ segir Haraldur Þór Egilsson safnstjóri Minjasafnsins á Akureyri en í liðinni viku færðist rekstur Iðnaðarsafnsins yfir til Minjasafnsins. Fyrsta verkefnið er opnun ljósmyndasýningar í dag, fimmtudaginn 14. mars kl. 17. Þar verða sýndar 120 ljósmyndir frá hinum ýmsu iðnaðarfyrirtækjum sem störfuðu í bænum á árum áður. Sýningin verður í Minjasafninu en færist yfir í Iðnaðarsafnið með sumaropnun þess. -
Leikdómur - Bróðir minn Ljónshjarta, skemmtileg og falleg sýning
Leikfélag Hörgdæla - Bróðir minn Ljónshjarta eftir Astrid Lindgren í þýðingu Þorleifs Haukssonar í leikgerð Evu Sköld. Leikstjóri:Kolbrún Lilja GuðnadóttirTónlistarstjóri: Svavar KnúturFramkvæmdarstjóri:Kristján Blær SigurðssonAðstoðarframkvæmdarstjóri:María Björk JónsdóttirLeikmyndahönnuður:Hafrún Bylgja GuðmundsdóttirLjósahönnuður:Þórir Gunnar Valgeirsson -
Nýr hlaðvarpsþáttur - heilsaogsal.is / AFMÆLISÞÁTTUR Sigrún Heimisdóttir
Þátturinn að þessu sinni er sérstakur afmælisþáttur þar sem 3 ár eru liðin frá því að Heilsu- og sálfræðiþjónustan hóf starfsemi. Í þættinum lítur Sigrún Heimisdóttir, framkvæmdastjóri, yfir farinn veg, ræðir stöðuna í dag og hvert stefnan er tekin. Hún kemur með gagnleg ráð til að draga úr streitu og ræðir ferðalagið til bata.
Íþróttir
-
Höldur-Bílaleiga Akureyrar styður Íþróttakarl Akureyrar
Höldur-Bílaleiga Akureyrar hefur gert styrktarsamning við einn fremsta hlaupara Íslands, Baldvin Þór Magnússon. Baldvin er einn allra sterkasti millivegalengda- og langhlaupari sem Ísland hefur átt. Hann hefur náð framúrskarandi árangri á undanförnum árum í hlaupum frá 1.500 metra og upp í 10 kílómetra hlaup. Hann á sem stendur fjórtán virk Íslandsmet, sex í yngri aldursflokkum og átta í flokki fullorðinna. -
Íslandsmeistaramótið í bogfimi - Íþróttafélagið Akur með 13 verðlaun
Íslandsmeistaramót í bogfimi var haldið nýverið í Bogfimisetrinu í Reykjavík, 11 iðkendur úr ÍF Akri voru skráðir til keppni í öllum fjórum bogaflokkum og 4 lið. Vel gekk á mótinu en helstu niðurstöður eru þær að Anna María Alfreðsdóttir fékk tvö gull, Alfreð Birgisson fékk einnig tvö gull og eitt silfur, Georg Rúnar Elfarsson kom heim með brons. Izaar Arnar Þorsteinsson fékk silfur. Jonas Björk fékk tvö gull og Rakel Arnþórsdóttir silfur. Aðstaða félagins sem opnuð var á liðnu hausti hefur breytt miklu fyrir ÍF Akur, en það má m.a. merkja á ánægju þeirra sem stunda íþróttina og mæta á æfingar, en einnig á þátttöku á mótum og þeim fjölda verðlauna sem félagsmenn koma með heim að þeim loknum. Nú um helgina verður Íslandsmót ungmenna þar sem Akur á nokkrar keppendur sem flestir eru á leið á sitt fyrsta mót. -
ALEX ÍSLANDSMEISTARI Í KRAFTLYFTINGUM MEÐ BÚNAÐI
Alex Cambray Orrason kraftlyftingamaður úr Lyftingadeild KA náði frábærum árangri um síðastliðna helgi þegar hann gerði sér lítið fyrir og stóð uppi sem sigurvegari á Íslandsmeistaramótinu í kraftlyftingum með búnaði. Í kraftlyftingum er keppt í þremur greinum, hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu. Ýmist er keppt með sérstökum búnaði eða án búnaðar auk þess sem keppendum er skipt í þyngdarflokka eftir líkamsþyngd. Sigurvegari er loks sá sem lyftir mestri þyngd samanlagt í öllum þremur greinum. -
Mikil tilhlökkun að flytja aftur heim og að spila fyrir Þór
Eins og fram kom i fjölmiðlum í gær skrifaði Oddur Gretarsson handboltamaður sem leikð hefur sem atvinnumaður i Þýskalandi til margra ára undir samning við uppeldisfélag sitt Þór um að leika með liðið félagsins næstu tvö árin. Vefur Vikublaðsins heyrði í Oddi í kjölfarið. -
Anna María með brons í Króatíu
Góð frammistaða Akureyringa var á Evrópumeistaramótinu í bogfimi í Króatíu í síðustu viku.