KA vann bæjarslaginn

Kampakátir KA menn  í leikslok     Mynd Þórir  Tryggvason
Kampakátir KA menn í leikslok Mynd Þórir Tryggvason

KA vann Þór í úrslitaleik Kjarnafæðismótsins 6-5 eftir vítaspyrnukeppni.  Óhætt er að segja að leikurinn hafi verið tvískiptur, Þór  yfirspilaði  KA í fyrri hálfleik og uppskáru tvö mörk sem Sigfús Fannar Gunnarsson og Aron Ingi Magnússon skoruðu og fóru með verðskuldaða forustu í hálfleik.

Það var hinsvegar eins og nýtt KA lið kæmi til leiks i síðari hálfleik, sóknir liðsins sífellt þyngri og þyngri og eitthvað hlaut að láta undan,   Bjarni Aðalsteinssom skoraði fyrra mark KA  og Daníel Hafsteinsson hið síðara skömmu fyrir leikslok.  

Það var gripið til vítaspyrnukeppni til að knýja fram úrslit  og þar hafði KA betur,  skoruðu úr fjórum spyrnum en Þór  úr þremur.  

Þetta er sjöunda árið í röð sem KA hrósar sigri í þessu móti.   Knattspyrnudómarafélag Norðurlands stóð fyrir mótinu sem endranær og var ákveðið að öll innkoma í kvöld rynni til Alzheimersamtakanna.   

Áhorfendur létu sig ekki vanta þrátt fyrir kulda  og þeir ásamt leikmönnum beggja liða einnig dómurum greiddu aðgangseyri og því ljóst að eitthvað skilar sér  til samtakanna og það kemur sér eflaust mjög vel.


Athugasemdir

Nýjast