Vikudagur kemur út í dag

Í Vikudegi sem kemur út í dag sitja oddvitar þeirra flokka á Akureyri sem hafa ákveðið að bjóða fram í sveitarstjórnarkosningunum í vor fyrir svörum og svara fjórum spurningum. Þannig fá lesendur innsýn inn í stefnu flokkana og hvað þeir standa fyrir. Í blaðinu er rætt við oddvita Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, VG, Framsóknarflokksins, L-listans og Pírata.

-Árið 2017 fjölgaði einstaklingsviðtölum hjá Aflinu um 15,3% frá árinu 2016. Metfjöldi er í nýjum skjólstæðingum og athygli vekur að 3% þeirra sem leituðu til Aflsins í fyrra var vegna mansals.  

-Vilhelm Einarsson, oft kallaður Villi Wilson, tók á dögunum við starfi rekstrarstjóra Hamborgarafabrikkunnar á Akureyri. Villi, sem er borinn og barnfæddur Akureyringur og Þórsari, er reynslubolti í veitingageiranum.

-Birk­ir Blær Óðins­son úr Mennta­skól­an­um á Ak­ur­eyri kom, sá og sigraði í Söng­keppni fram­hald­skól­anna sem fór fram á Akra­nesi sl. helgi. Birk­ir Blær flutti lagið I Put A Spell On You eft­ir Scream­in' Jay Hawk­ins. Dóm­nefnd valdi sig­ur­veg­ar­ann en alls tóku 24 skól­ar þátt. Vikudagur fékk Birki Blæ í nærmynd.

-Keppni í Inkassou-deild karla og Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu hefst um helgina og er rætt er við þjálfara Þórs/KA og Þórs um komandi tímabil.

-Kristrún Lind Birgisdóttir sér um matarhorn vikunnar og kemur með girnilegar uppskriftir. Kristrún starfar sem rágjafi hjá sínu eigin fyrirtæki sem heitir Trappa ráðgjöf og er staðsett á Akureyri.

Þetta og meira til í Vikudegi í dag. Áskriftarsíminn er 460-0750 og 860 6751. Einnig er hægt senda póst á askrift@vikudagur.is


Athugasemdir

Nýjast