Útvarp Akureyri hætt starfsemi

Axel Axelsson í stúdíóinu.
Axel Axelsson í stúdíóinu.

Útvarp Akureyri hefur hætt starfsemi en þetta staðfestir Axel Axelsson eigandi og stofnandi útvarpsstöðvarinnar í samtali við Vikudag. Um ástæðuna segir Axel að hugurinn hafi verið farinn að leita annað og þá spili erfitt rekstrarumhverfi inn í.

„Ég ákvað bara að slökkva. Það var ekkert öðruvísi. Og geri það í fullri sátt við sjálfan mig og aðra," segir Axel. „Mér fannst þetta vera komið gott og vildi snúa mér að öðrum hlutum. En auðvitað hefur slæmt rekstrarumhverfi fjölmiðla líka áhrif. Þetta var hins vegar mjög skemmtilegt á meðan á þessu stóð,“ segir Axel.    

Útvarpstöðin fór í loftið í desember árið 2017 og sendi út á tíðninni FM 98,7.


Athugasemdir

Nýjast