Umhverfisverðlaun Eyjafjarðarsveitar

Frá afhendingu umhverfisverðlauna Eyjafjarðarsveitar
Frá afhendingu umhverfisverðlauna Eyjafjarðarsveitar

Þann 29.apríl afhenti Atvinnu- og umhverfisnefnd tvenn umhverfisverðlaun, annarsvegar í flokki einstaklinga og hinsvegar í flokki atvinnustarfsemi.

Vilborg Þórðardóttir að Ytra-Laugalandi fékk verðlaun í hópi einstaklinga. Nefndin fékk fjölda ábendinga um dugnað Vilborgar og þann metnað sem hún hefur við að halda umhverfi sínu fallegu og snyrtilegu og taldi nefndin hana vel til verðlaunanna komin.

Skógarböðin fengu verðlaun í atvinnustarfsemi og voru það frumkvöðlar Skógarbaðanna og stærstu eigendur, hjónin Finnur Aðalbjörnsson og Sigríður María Hammer, sem tóku við verðlaununum fyrir hönd þess. Skógarböðin þekkja flestir en aðkoma að þeim og umgjörðin öll er til mestu fyrirmyndar.

Eyjafjarðarsveit óskar Vilborgu, Finni og Sigríði til hamingju með verðlaunin.

Frá þessu er sagt á  heimasíðu Eyjafjarðarsveitar


Athugasemdir

Nýjast