„Þetta var mikil áskorun“

„Þetta var fyrsta nafnið sem kom upp og við athuguðum strax hvort það væri laust. Mér fannst ekkert …
„Þetta var fyrsta nafnið sem kom upp og við athuguðum strax hvort það væri laust. Mér fannst ekkert annað koma til greina og þetta nafn tengir okkur betur við fólkið í bænum,“ segir Gauti. Mynd/Þröstur Ernir.

Gauti Einarsson lyfjafræðingur stofnaði Akureyrarapótek árið 2010 ásamt Jónínu Freydísi Jóhannesdóttur og endurvakti í leiðinni rótgróið nafn á apóteki í bænum. Hann segir sterkan hvata vera á meðal bæjarbúa um að versla í heimabyggð og nafnið eigi sérstakan sess í hugum fólks. Gauti segir það hafa verið áskorun að fara í samkeppni við risana á markaðnum.

Gauti er haldinn söfnunaráráttu, hlustar á vínylplötur og les teiknimyndasögur í frístundum.

Vikudagur heimsótti Gauta í Akureyrarapótek en viðtalið má nálgast í prentútgáfu blaðsins.


Athugasemdir

Nýjast