Ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun

Opin kynning á náminu verður á mánudag, 18. mars í stofu M102 kl: 12:00-12:45 en fundinum verður ein…
Opin kynning á náminu verður á mánudag, 18. mars í stofu M102 kl: 12:00-12:45 en fundinum verður einnig streymt.

Ný námsleið verður í boði næsta haust innan hjúkrunarfræðideildar Háskólans á Akureyri í samstarfi í félagsráðgjafadeild Háskóla Ísland.

Þetta er framhaldsnám á meistarastigi, 60 ECTS og ber heitið Ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun. Megininntak námsins er sérhæfing á sviði heilabilunar með áherslu á persónumiðaða, heildræna og samþætta ráðgjöf og þjónustu við fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra auk ráðgjafar og fræðslu til faghópa, almennings og stofnana. Námið er þverfræðilegt enda krefst ráðgjöf í heilabilun víðrar sýnar og samstarfs margra aðilasegir í tilkynningu.

Mikið samfélagslegt gildi

Námsleið þessi hefur mikið samfélagslegt gildi þar sem hún er unnin í samræmi við stefnumótun og aðgerðaráætlun stjórnvalda í málefnum fólks með heilabilun. Mikil þörf er á aukinni menntun og fagþekkingu í þessum málefnum í ljósi ört vaxandi hóps með heilabilun og er mikilvægt fyrir heilbrigðis og velferðarkerfið í heild. Starfsvettvangur ráðgjafa í málefnum fólks með heilabilun er talinn víðtækur en þar á meðal eru stjórnunar og ráðgjafastörf innan heillbrigðis-og velferðarkerfisins eins og innan heilbrigðisumdæma, minnismóttaka, heilsugæslu, heimahjúkrunar, félagslegrar heimaþjónustu, dagþjálfunar og hjúkrunarheimila.


Athugasemdir

Nýjast