Eldur í þaki Kaffibrennslunnar

Mynd úr safni
Mynd úr safni

Slökkvilið var kallað út að Kaffi­brennsl­unni við Tryggvagötu á Ak­ur­eyri á átt­unda tím­an­um í kvöld. Eld­ur hafði komið upp í af­mörkuðum hluta þaks húss­ins. Fyrr um daginn hafði verið unnið að framkvæmdum í þeim hluta þaksins, mbl.is greindi frá þessu.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ak­ur­eyri náði eldurinn hvergi að teygja anga sína inn í húsið. Samt var tekin ákvörðun um að reykræsta húsið þegar slökkviliðið hafði ráðið niðurlögum eldsins. Skemmdir á þakinu voru lítilsháttar.


Athugasemdir

Nýjast