Benedikt og Betty leiða Viðreisn í NA-kjördæmi

Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, skipar fyrsta sæti á lista flokksins í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 29. október. Annað sæti skipar Hildur Betty Kristjánsdóttir, deildarstjóri í Naustaskóla á Akureyri. Stjórn Viðreisnar hefur staðfest lista frambjóðenda.

Listinn er fléttulisti með jöfnu kynjahlutfalli:

 

  1. Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, Reykjavík
  2. Hildur Betty Kristjánsdóttir, deildarstjóri, Akureyri
  3. Jens Hilmarsson, lögreglumaður, Egilsstöðum
  4. Ester Sigurásta Sigurðardóttir, verkefnastjóri, Vopnafirði
  5. Hjalti Jónsson, sálfræðingur og tónlistarmaður, Akureyri
  6. Guðný Björg Hauksdóttir, framkvæmdastjóri, Reyðarfirði
  7. Kristófer Alex Guðmundsson, sala og markaður, Akureyri
  8. Sigríður Ásta Hauksdóttir, fjölskylduráðgjafi, Akureyri
  9. Halldór Sævar Guðbergsson, fagstjóri og íþróttakennari, Akureyri
  10. Hrefna Zoëga, Norðfirði
  11. Friðrik Sigurðsson, fv. forseti sveitarstjórnar Norðurþings, Akureyri
  12. Soffía Björk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri, Akureyri
  13. Steingrímur Karlsson, kvikmyndagerðarmaður og ferðaþjónustufrumkvöðull, Reyðarfirði
  14. Una Dögg Guðmundsdóttir, kennari, Siglufirði
  15. Ingvar Gíslason, háskólanemi, Reykjavík
  16. Anna Svava Traustadóttir, verslunarstjóri, Akureyri
  17. Valtýr Hreiðarsson, ferðaþjónustubóndi, Svalbarðsströnd
  18. Sinniva Lind T. Gjerde, skólaliði, Akureyri
  19. Páll Baldursson, sagnfræðingur og fv. sveitarstjóri á Breiðdalsvík, Egilsstöðum
  20. Sólborg Sumarliðadóttir, hjúkrunarfræðingur, Seyðisfirði

Athugasemdir

Nýjast