Akureyri - Hængsmenn eru höfðingjar

Nýi bílinn er hinn glæsilegasti og afar vel búinn
Nýi bílinn er hinn glæsilegasti og afar vel búinn

Lionsklúbburinn Hængur heldur sitt árlega Hængsmót í 42 skiptið um komandi helgi, 3 til 5 maí. Á mótinu keppa um 200 keppendur í Boccia og lýkur mótinu með veglegu lokahófi og balli.

Í upphafi mótsins mun klúbburinn afhenda Skammtímavistun fatlaðra á Akureyri nýja bifreið af gerðinni Mercedes Bens eVito sem leysir af hólmi eldri bifreið sem Lionshreyfingin á Íslandi gaf til sama aðila árið 2006.

Bíllinn er rafdrifinn og því verður rekstrarkostnaður og umhverfisspor hans minna en ella.


Athugasemdir

Nýjast