Tíu framboða fundur á Húsavík

Tíu talsmenn tíu framboða á fundinum í gær, ásamt fundarstjórum. Mynd: JS
Tíu talsmenn tíu framboða á fundinum í gær, ásamt fundarstjórum. Mynd: JS

Í gærkvöldi stóðu nemendur í stjórnmálafræði í Framhaldsskólanum á Húsavík fyrir opnum framboðsfundi í Sal Borgarhólsskóla á Húsavík. Nemendur stjórnuðu fundinum og sáu um tímavörslu og gættu þess að einstakir frambjóðendur  listanna í kjördæminu töluðu ekki umfram aðra. Þetta fórst nemendum afar vel úr hendi.

Vel var mætt á fundinn, enda eini opni sameiginlegi fundurinn á Húsavík fyrir Alþingiskosningarnar. Frambjóðendur kynntu  áherslur sinna lista fyrir komandi kosningar og svöruðu fyrirspurnum úr sal.

Eftirtalin 10 framboð öttu fram talsmönnum á fundinum: VG. Sjálfstæðisflokkur. Björt framtíð. Viðreisn. Dögun. Píratar. Alþýðufylkingin. Framsóknarflokkur. Samfylkingin. Flokkur fólksins. JS

 


Athugasemdir

Nýjast