Stjórnsýsluumbætur hjá Akureyrarbæ

Bæjarráð Akureyrarbæjar hefur samþykkt tillögur stjórnsýslunefndar bæjarráðs um umbætur á stjórnsýslu bæjarins. Markmið umbótanna er að laga stjórnsýslu bæjarins að breyttum tímum og ná fram aukinni skilvirkni til hagsbóta fyrir bæjarbúa.

Stærsta breytingin sem verður vegna stjórnsýslumbótanna er að stjórnsýslueiningum Akureyrarbæjar fækkar úr 14 í 10 auk þess sem nefndir verða sameinaðar. Stjórnsýsluumbæturnar hafa verið kynntar fyrir öllum stjórnendum Akureyrarbæjar og verða í framhaldinu kynntar fyrir öðru starfsfólki bæjarins. Þær verða teknar til umfjöllunar á fundi bæjarstjórnar þann 4. október næstkomandi.

Til hagsbóta fyrir bæjarbúa

Helstu markmið með breytingunum eru þau að einfalda stjórnsýsluna í þeim tilgangi að efla þjónustu við bæjarbúa. Það er gert með því að koma til móts við kröfur um betri þjónustu í stjórnkerfinu, rafræna stjórnsýslu, betri mannauðsstjórnun og betri rekstur. „Með þessum stjórnsýsluumbótum erum við að aðlaga stjórnsýslu Akureyrarbæjar að breyttum tímum. Á þeim áratug sem liðinn er frá því að núverandi stjórnskipulagi var komið á hafa orðið miklar breytingar á verkefnum og rekstri bæjarins sem mikilvægt er að bregðast við. Þá munu umbæturnar leiða til aukinnar skilvirkni sem muni leiða til bættrar þjónustu og betri rekstrar sem er til hagsbóta fyrir bæjarbúa. Að baki þessum umbótum liggur mikil og vönduð vinna og vil ég þakka öllum sem að henni komu fyrir sitt framlag,“ segir Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri Akureyrar um stjórnsýsluumbæturnar.

Tímabærar umbætur

Núverandi stjórnskipulag Akureyrarbæjar er frá árinu 2006 og síðan þá hefur margt sem tengist starfsemi sveitarfélagsins breyst sem kallað hefur á breytingar í stjórnkerfinu. Því er orðið tímabært að gera breytingar á stjórnskipulagi bæjarins sem laga það að nýjum tímum. Umbæturnar sem bæjarráð hefur samþykkt að leggja fyrir bæjarstjórn byggja á umfangsmikilli vinnu stjórnsýslunefndar bæjarráðs sem hófst haustið 2015. Við þá vinnu naut nefndin aðstoðar frá ráðgjafarfyrirtækinu Capacent auk þess sem leitað var til nokkurs hóps starfsfólks bæjarins eftir hugmyndum, ábendingum og afstöðu. 

Markmið stjórnsýsluumbótanna er að einfalda stjórnskipulag Akureyrarbæjar, auka samstarf og styðja við vinnslu umbótaverkefna þvert á málaflokka. Það er mat bæjarráðs að umbæturnar muni leiða til einfaldari, skilvirkari og hagkvæmari stjórnsýslu fyrir íbúa sveitarfélagsins auk þess að gera samskipti á milli miðlægrar stjórnsýslu og fagsviða skilvirkari. 

Stjórnsýslueiningum fækkar

Með stjórnsýsluumbótunum verður stjórnsýslueiningum í skipuriti Akureyrarbæjar fækkað úr 14 í 10. Það verður gert með því að sameina deildir með skylda starfsemi í svið með það að markmiði að auka faglegan styrk, yfirsýn og stytta boðleiðir.

Nýtt skipurit mun fela í sér eftirfarandi breytingar:

  • Nafni búsetudeildar verður breytt í búsetusvið.
  • Fjársýslusvið verður til með sameiningu fjármálaþjónustu og hagþjónustu.
  • Nafni fjölskyldudeildar verður breytt í fjölskyldusvið og sérfræðiþjónusta sem verið hefur á fjölskyldudeild verður færð á fræðslusvið sem skólaþjónusta. Verkefni húsnæðisdeildar færast til fjölskyldusviðs.
  • Umhverfis- og mannvirkjasvið verður til með sameiningu framkvæmdadeildar og Fasteigna Akureyrarbæjar.
  • Samfélagssvið verður til með sameiningu samfélags- og mannréttindadeildar og Akureyrarstofu sem verður áfram sérstök deild.
  • Nafni skipulagsdeildar verður breytt í skipulagssvið.
  • Nafni skóladeildar verður breytt í fræðslusvið og sérfræðiþjónusta sem verið hefur á fjölskyldudeild verður færð á fræðslusvið sem skólaþjónusta.
  • Stjórnsýslusvið verður til með sameiningu starfsmannaþjónustu og skrifstofu ráðhúss.
  • Skoðað verður að breyta rekstrarfyrirkomulagi Öldrunarheimila Akureyrar t.d. í sjálfseignarstofnun.

Nefndum fækkað

 Samhliða þessum breytingum verða gerðar breytingar á fastanefndum og þeim fækkað. Þannig verða samfélags- og mannréttindaráð og íþróttaráð sameinuðu í frístundaráð. Verkefni framkvæmdaráðs, stjórnar Fasteigna Akureyrar og umhverfisnefndar verða felld saman undir eitt ráð sem nefnist umhverfis- og mannvirkjaráð. Þá mun Akureyrarstofa taka við verkefnum atvinnumálanefndar.


Athugasemdir

Nýjast