Sjálfstæðisflokkurinn stærstur

Kristján Þór Júlíusson, oddviti Sjálfstæðisflokks í Norðausturkjördæmi.
Kristján Þór Júlíusson, oddviti Sjálfstæðisflokks í Norðausturkjördæmi.

Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis. Könnunin var gerð í gær og í fyrrakvöld.

Niðurstöðurnar könnunarinnar benda til þess að Sjálfstæðisflokkurinn fái flest atkvæði allra flokka eða 25,1 prósent. 23,7 prósent sögðust ætla að kjósa flokkinn í síðustu viku.

Píratar mælist með 20,3 prósenta fylgi og er næststærsti flokkurinn. Vinstri græn eru með 16,4 prósenta fylgi. Framsóknarflokkurinn er með 11,2 prósenta fylgi og Viðreisn eru álíka stórir með 10,8 prósent. Báðir flokkar bæta við sig frá því í síðustu könnun þegar Framsóknarflokkurinn var með 8,5 prósent og Viðreisn með aðeins 6,6 prósent.

Samfylkingin er í basli og mælist núna með sex prósenta fylgi, sem er svipað og flokkurinn var með í síðustu viku, og Björt framtíð tapar fylgi milli vikna, er með 5,1 prósent núna en var með 7,4 prósent.

Píratar, VG, Samfylkingin og Björt framtíð hafa að undanförnu rætt saman um samstarf eftir kosningar. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík norður segir í samtali við Fréttablaðið að Samfylkingin geti ekki tekið þátt í stjórnarsamstarfi ef niðurstöður kosninga verða í samræmi við kannanir.

Í þessari könnun Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis taka fleiri afstöðu en í fyrri könnunum eða 76,6 prósent. Rúm sex prósent segjast ekki ætla að kjósa eða skila auðu, níu prósent segjast óákveðin og tæp átta prósent kjósa að svara ekki spurningunni. Í könnun sem gerð var fyrir viku tóku 68 prósent svarenda afstöðu.

Könnunin var gerð þannig að hringt var í 1.127 manns dagana 24. og 25. október þar til náðist í 802 samkvæmt lagskiptu slembiúrtaki. Svarhlutfallið var því 71,2 prósent. 


Athugasemdir

Nýjast