Samningur milli MAk og Ásprents Stíls

Þuríður Helga Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri MAk og G. Ómar Pétursson framkvæmdastjóri Ásprents St…
Þuríður Helga Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri MAk og G. Ómar Pétursson framkvæmdastjóri Ásprents Stíls undirrituðu samninginn. Mynd/Þröstur Ernir

MAk og Ásprent Stíll hafa undirritað samning sín á milli sem felur í sér víðtæka þjónustu Ásprents Stíls við MAk. Um er að ræða birtingar auglýsinga í miðlum Ásprents Stíls, prentþjónustu, skiltagerð og fleira. Jafnframt verður Ásprent Stíll einn af samstarfs- og styrktaraðilum MAk starfsárið 2016 – 2017. Þuríður Helga Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri MAk og G. Ómar Pétursson framkvæmdastjóri Ásprents Stíls undirrituðu samninginn sl. föstudag. Sagði Þuríður Helga af þessu tilefni að mikilvægt væri fyrir MAk að fá öflugan þjónustuaðila á þessu sviði til samstarfs við MAk.


Athugasemdir

Nýjast