Opinn fundur í Hofi um ferðaþjónustuna í Norðausturkjördæmi

Opinn fundur Samtaka ferðaþjónustunnar með fulltrúum stjórnmálaflokkanna í Norðausturkjördæmi fer fram kl. 20 í kvöld í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri.

Á fundinum munu fulltrúar flokkanna  ræða málefni ferðaþjónustunnar við talsmenn Samtaka ferðaþjónustunnar:

-          Frá Bjartri framtíð Arngrímur Viðar Ásgeirsson.

-          Frá Sjálfstæðisflokki Njáll Trausti Friðbertsson.

-          Frá Framsóknarflokki Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

-          Frá Vinstri grænum Björn Valur Gíslason.

-          Frá Samfylkingu Erla Björg Guðmundsdóttir.

-          Frá Pírötum Einar Brynjólfsson.

-          Frá Viðreisn Benedikt Jóhannesson.

Á fundinum verður kastljósinu beint að viðfangsefnum ferðaþjónustunnar í kjördæminu og rætt við fulltrúa flokkanna um leiðir til að atvinnugreinin geti vaxið og dafnað í sátt við náttúru og íbúa.

Sýnt verður beint frá fundinum á vefsíðu SAF


Athugasemdir

Nýjast