Nýr samstarfssamningur Landsbankans og Völsungs

Guðmundur Friðbjarnarson framkvæmdastjóri  Völsungs og Bergþór Bjarnason útibússtjóri Landsbankans á…
Guðmundur Friðbjarnarson framkvæmdastjóri Völsungs og Bergþór Bjarnason útibússtjóri Landsbankans á Húsavík við undirritun samninginn í dag. Mynd: Völsungur

Völsungur og Landsbankinn á Húsavík hafa gert með sér samstarfssamning til þriggja ára um stuðning bankans við allar deildir félagsins næstu árin.

Það voru  Guðmundur Friðbjarnarson framkvæmdastjóri  Völsungs og Bergþór Bjarnason útibússtjóri á Húsavík sem undirrituðu samninginn í dag.

Samkvæmt samningum fá deildir félagsins árlega greiðslu eins og í fyrri samningi. Landsbankinn og Völsungur munu vinna saman að vímuvarnarstefnu Völsungs og skal hluta af styrk bankans varið í námskeiðahald í vímuvörnum fyrir þjálfara og félagsmenn Völsungs.

„Samningurinn við Völsung er mjög þýðingarmikill fyrir okkur og er stærsti einstaki styrktarsamningur útibúsins. Félagið er burðarás í æskulýðs- og íþróttastarfi bæjarins og því er mjög mikilvægt að leggja lóð á vogarskálarnir,“ segir Bergþór Bjarnason, útibússtjóri Landsbankans á Húsavík. 


Athugasemdir

Nýjast