Kertakvöld í miðbæ Akureyrar

Mynd: akureyri.is
Mynd: akureyri.is

Það verður rökkurró og huggulegheit í miðbænum á Akureyri í kvöld á svokölluðu Kertakvöldi en þá verður miðbærinn myrkvaður og kertaljósin taka yfir.

Verslanir verða opnar til kl. 22. Veitingastaðir og verslanir hafa rökkvað innandyra eins og kostur er. Opin eldstæði verða í miðbænum þar sem börnunum býðst að grilla sykurpúða. Upplagt að leggja inn í aðventuna með rólegheitakvöldi í miðbænum fyrir alla fjölskylduna.


Athugasemdir

Nýjast