Hótelstjóraskipti á Fosshótel Húsavík

Einar Karl og Brynja eru hér ásamt Jónu (þeim á vinstri hönd)sem hættir sem hótelstjóri um næstu mán…
Einar Karl og Brynja eru hér ásamt Jónu (þeim á vinstri hönd)sem hættir sem hótelstjóri um næstu mánaðamót. Þau áttu góða samverustund með forsvarsmönnum Framsýnar, þeim Aðalsteini Árna og Huld Aðalbjarnar skrifstofu- og fjármálastjóra stéttarfélaganna. Mynd: Framsýn

Þann 1. febrúar næstkomandi verða hótelstjóraskipti hjá Fosshótel Húsavík.

Jóna Árný Sigurðardóttir sem verið hefur hótelstjóri hefur ákveðið að fara í nám eftir farsæl störf fyrir hótelið. Í hennar stað hefur Einar Karl Guðmundsson verið ráðinn sem hótelstjóri og Brynja Jóhannesdóttir sem aðstoðarhótelstjóri en þau eru hjón. Þetta kom fram á vef Framsýnar, stéttarfélags.


Athugasemdir

Nýjast