Heimsmeistaramót í íshokkí haldið á Akureyri

Akureyri. Mynd úr safni
Akureyri. Mynd úr safni

Heimsmeistaramót kvenna í annarri deild sem áætlað var að halda í Reykjavik, 27. febrúar til 5. mars 2017 verður haldið á Akureyri.  Þetta kemur fram á heimasíðu Íshokkísambands Íslands.

Þær þjóðir sem munu senda lið sitt til Íslands, eru: Tyrkland, Nýja Sjáland, Rúmenía, Spánn og Mexico.  

„Íslensku stelpurnar er mjög spenntar yfir þessar ákvörðun og  ætla sér gull á þessu móti.  Þær stefna fast og örugglega á að komast í næstu deild fyrir ofan,“ segir í tilkynningunni. Skautafélag Akureyrar verður 80 ára í janúar næskomandi. Það er því upplagt að halda upp á afmælið með heimsmeistaramóti.


Athugasemdir

Nýjast