Heildarlaunin í Einingu-Iðju að jafnaði 443 þúsund kórnur

Eining-Iðja hefur undanfarin ár látið Gallup gera umfangsmiklar viðhorfs- og kjarakannanir meðal félagsmanna sinna í samstarfi við AFL Starfsgreinafélag. Þessar kannanir eru byggðar á sambærilegum könnunum sem nokkur önnur félög innan verkalýðshreyfingarinnar hafa látið gera.

Niðurstöður slíkra kannana eru afar gagnlegar fyrir félagið, sem hefur m.a. það að markmiði að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum félagsmanna, svo sem með því að semja um kaup og kjör, bættan aðbúnað við vinnu og gæta þess að ekki sé gengið á rétt félagsmanna.

Nú liggja fyrir niðurstöður könnunar, sem Gallup gerði meðal félagsmanna í október og nóvember á nýliðnu ári. Könnunin er birt í heild sinni á heimasíðu félagsins, ein.is.

Laun

Heildarlaun voru að jafnaði 443 þúsund krónur á mánuði, miðað við 408 þúsund krónur á sama tíma á árinu 2015. Heildarlaun karla voru 486 þúsund krónur en kvenna 397 þúsund krónur. Dagvinnulaunin hafa sömuleiðis hækkað á milli tímabila. Þau voru í lok nýliðins árs að meðaltali 346 þúsund krónur, miðað við 320 þúsund krónur fyrir einu ári síðan. Karlarnir voru með 358 þúsund krónur á mánuði og konurnar 335 þúsund krónur. Að meðaltali unnu svarendur 45,3 klst. á viku í sínu aðalstarfi, sem er svipaður fjöldi og í síðustu könnun.

Líðan í starfi

Eins og fyrr segir voru margir þættir kannaðir í umræddri Gallup-könnun. Svarendur voru sérstaklega spurðir um líðan í starfi.

30% sögðust vera mjög sammála fullyrðingunni um að viðkomandi væri mjög ánægður í starfi og 48% sögðust vera frekar sammála. Þessi afgerandi niðurstaða er um margt ánægjuleg, því líðan í starfi og á vinnustað hefur mikil áhrif á líðan okkar almennt.

Vinnan og virk þátttaka á vinnumarkaði er einn mikilvægasti þátturinn í lífi sérhvers einstaklings. Þegar rýnt er nánar i könnunina, kemur í ljós að 39% fólks sem er í umönnunarstörfum segist vera mjög ánægt í sínu starfi. Hlutfallið er hins vegar 19% hjá þeim sem starfa við verkastörf eða verkstjórn.

Hvað varðar fullyrðingu um að samskipti á vinnustað séu opin og heiðarleg, kemur í ljós að 32% svarenda eru þeirri fullyrðingu sammála og 41% frekar sammála.

Ánægja með félagið

Svarendur voru sérstaklega spurðir um þjónustu og starfsemi Einingar-Iðju. Skemmst er frá því að segja að rúmlega 95% segjast vera „sáttir“ eða „hvorki né“ þegar spurt var hvort viðkomandi væri sáttur eða ósáttur við félagið. Þetta eru svipaðar niðurstöður og á undanförnum árum. Rúmlega 60% svarenda sögðust hafa nýtt sér einhverja þjónustu félagsins undnanfarna 12 mánuði, sem er marktæk aukning frá fyrri könnun. Virk þátttaka félagsmanna er lykillinn að skilvirkri og öflugri starfsemi félagsins, þannig að ég sem formaður gleðst yfir þessum tölum.

Gleðilegt ár

Á margan hátt geta félagsmenn verið bjartsýnir í upphafi nýs árs, verk er hins vegar að vinna á mörgum sviðum á sviði verkalýðmála. Við þá vinnu koma niðurstöður viðhorfs- og kjarakönnunarinnar að góðum notum. Ég óska félagsmönnum og landsmönnum öllum gleðilegs árs og þakka öllum fyrir samfylgdina á nýliðnu ári.

Höfundur er formaður Einingar-Iðju.


Athugasemdir

Nýjast