Guðmann Þórisson gerir tveggja ára samning við KA

Mynd: KA.is
Mynd: KA.is

Guðmann Þórisson hefur gert nýjan samning við KA sem gildir til næstu tveggja ára.

Guðmann lék með KA í sumar og var alger lykil leikmaður í velgengni liðsins í sumar. Hann spilaði í hjarta varnarinnar og KA fékk aðeins á sig 16 mörk í 22 leikjum og Guðmann bætti um betur og skoraði 2 mörk á tímabilinu.

Guðmann er fæddur árið 1987 og leikur sem miðvörður. Hann er uppalinn hjá Breiðablik en fór út sem atvinnumaður til Noregs árið 2010. Hann sneri til baka til Íslands og gekk í raðir FH árið 2012. Þar lék hann til ársins 2014 þegar hann fór aftur út í atvinnumennskuna og lék í Svíþjóð, nánar tiltekið með Mjälby. Hann lék síðan með meistaraliði FH í fyrrasumar.


Athugasemdir

Nýjast