Grunaður um fleiri kynferðisbrot gegn barni

Eiríkur Fannar Traustason sem hlaut fimm ára fangelsisdóm í Hæstarétti í byrjun júní, fyrir að nauðga 17 ára franskri stúlku í Hrísey í fyrrasumar með hrottafengnum hætti var sleppt úr fangelsi fyrr í þessum mánuði.

Hann gengur nú laus án eftirlits, RÚV greindi frá þessu. Ástæðan ku vera alvarleg veikindi barna hans, en hann eignaðist tvíbura fyrir skemmstu.

Eiríkur Fannar er nú til rannsóknar fyrir að hafa ítrekað brotið kynferðislega gegn 13 ára stúlku í Hrísey þetta sama sumar. Það mál er nú komið inn á borð héraðssaksóknara. 


Athugasemdir

Nýjast