Götur myrkvaðar á Akureyri í kvöld

Norðurljós á Akureyri í gærkvöldi. Mynd:akureyri.is
Norðurljós á Akureyri í gærkvöldi. Mynd:akureyri.is

Götuljós verða slökkt við strandlengjuna á Akureyri frá kl. 22-24 í kvöld svo íbúar og gestir geti notið magnaðrar norðurljósasýningar sem spáð er á himni þegar aldimmt verður orðið.

Svæðið sem myrkvað verður afmarkast af Höephner í suðri til Menningarhússins Hofs í norðri. Þannig ætti ljósmengun að vera í lágmarki á því svæði neðan brekkubrúnar.

Norðurljósavirknin hefur verið góð undanfarna daga og mjög mikil virkni verður í kvöld skv. norðurljósaspá Veðurstofu Íslands.

Lögregla og slökkvilið hafa verið upplýst um málið og er fólk hvatt til að aka einstaklega varlega á þessu svæði og sýna tillitssemi á meðan myrkvun stendur.


Athugasemdir

Nýjast