Götuljós slökkt á Húsavík í kvöld

Mynd: Af vef Norðurþings
Mynd: Af vef Norðurþings

Ákveðið hefur verið að fara að fordæmi Reykvíkinga og slökkva á götuljósum á Húsavík í kvöld til kl 23.

Ástæðan er sú að spáð er glæsilegri norðurljósasýningu í kvöld. Vonir standa til að það verði heiðskýrt þannig að sýning náttúrunnar skili sér sem allra best. 

Vegfarendur eru beðnir um að sýna varkárni á meðan götuljósin eru slökkt.


Athugasemdir

Nýjast