Geta og eiga sveitarfélög að reka hjúkrunarheimilin?

Öldrunarheimilið Hlíð. Mynd úr safni.
Öldrunarheimilið Hlíð. Mynd úr safni.

Opinn fundur um rekstur hjúkrunarheimila verður haldinn í Menningarhúsinu Hofi á þriðjudagskvöld kl. 20. Leitast verður við að svara þeirri spurningu hvort sveitarfélögin geti og eigi að reka hjúkrunarheimili en ábyrgð á stofnanaþjónustu við aldraða er á höndum ríkisvaldsins.

Framsögu á fundinum hafa Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður bæjarráðs sem fjallar um rekstrarstöðu Öldrunarheimila Akureyrar, Karl Björnsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga talar um stöðu sveitarfélaga sem reka hjúkrunarheimili og nýtt rammasamkomulag um rekstur hjúkrunarheimila, og loks mun Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, reifa málið frá sjónarhóli ríkisins. Að loknum framsögum verður opið fyrir almennar umræður og fyrirspurnir. Fundarstjóri verður Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri Akureyrarstofu.

 


Athugasemdir

Nýjast