Fyrstir til að aka hringinn á innlendu eldsneyti

Kapparnir Einar Vilhjálmsson og Ómar Ragnarsson munu um helgina aka kringum landið á bíl knúnum íslensku metani. Þetta er í fyrsta skipti sem hringvegurinn er ekinn á bíl knúnum al-íslensku eldsneyti, sem í þokkabót er umhverfisvænt. Með leiðangrinum er vakin athygli á þeim möguleikum sem felast í innlendri eldsneytisframleiðslu og metanbílum sem vistvænum og sparneytnum valkosti í samgöngum. Þeir félagar koma til Akureyrar í kvöld.  

Einar og Ómar lögðu upp frá áfyllingarstöð N1 við Bíldshöfða 2 sem er fyrsta fullbúna þjónustumiðstöðin fyrir metanbíla á Íslandi. Bíldshöfðastöðin þykir merkileg, því að hún er beintengd með röri út í Álfsnes og er hugsanlega eina fjölorkustöðin í heiminum þar sem fyllt er á bíla beint úr orkulindinni. Opnun fleiri stöðva er í bígerð og verða þær fyrirætlanir kynntar nánar á næstunni. Heiðursvörður nokkurra metanknúinna sorphirðubíla þeyttu flautur sínar þegar félagarnir lögðu af stað frá Bíldshöfða.

Nemendur breyttu bensínbíl í metanbíl


Hringurinn verður ekinn í bifreið af gerðinni Ford Pick-Up sem breytt var í Metan-bíl af nemendum í Borgarholtsskóla. Bíllinn er með 210 hestafla vél og nær allt að 260 km hraða á klst. Ekki er þó áætlað að setja nein hraðamet í ferðinni, heldur hyggjast þeir félagar Einar og Ómar taka því rólega og koma við í nokkrum sveitarfélögum á leið sinni um landið og heilsa upp á fólk.


Metan bæði vistvænt, þjóðhagslega hagkvæmt og lyktarlaust

Eitt  helsta markmiðið með hringferðinni er að vekja athygli á sparnaðinum sem fylgir notkun metans: „Hækkandi verði á hefðbundnu bifreiðaeldsneyti hefur vakið aukna athygli á bifreiðum sem knúnar eru með metani, en verð á jafngildir því að greiddar væru tæpar 84 kr. fyrir bensínlítrann. Það munar um minna," segir Einar Vilhjálmsson hjá Metan hf.  Auk þess felist þjóðhagslegur sparnaður í að nota íslenskt eldsneyti í stað innflutts. „Til dæmis má nefna að það þarf 113 metanbíla til að blása út koltvísýringi á við einn bensínbíl." Einar segir að þó að enn sé óljóst hvaða orkugjafi verði ofan á í framtíðinni þá séu metanbílar raunhæfur og hagkvæmur valkostur strax í dag, hvort heldur fyrir umhverfismeðvitaða einstaklinga, fyrirtæki eða stofnanir.
„Og ólíkt því sem margir halda, þá er metan algjörlega lyktarlaust."

Iðnaðarráðherra ekur síðasta spölinn


Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra hyggst leggja þeim félögum lið með því að setjast undir stýri á metanbílnum og aka síðasta spölinn til Reykjavíkur á sunnudag. Hún mun þá jafnframt geta vottað um að, ólíkt mörgum öðrum umhverfisvænum bílum, þá eru akstureiginleikar metanbíla algjörlega sambærilegir við bensínbíla. Gert er ráð fyrir að þau aki í hlað á Bíldshöfða 2, kl.16:00 á sunnudag

Góð reynsla af metani hjá sveitarfélögum

Á annað hundrað ökutækja hér á landi nýtir metan að hluta eða að öllu leyti. Meðal ökutækja sem ganga eingöngu fyrir metani eru 11 sorphirðubílar, 7 sendibílar og 2 gámaflutningabílar sem þjóna Reykjavíkurborg og 2 almenningsvagnar Strætó bs.  Þátttakendur í metanverkefninu eru SORPA bs., Metan hf.,  Orkuveita Reykjavíkur sf., REI hf. og N1 hf. sem á og rekur metanstöðvarnar. Metanið er framleitt í  Álfsnesi en þar er það unnið úr hauggasi sem verður til úr lífrænum úrgangi sem þar er urðaður. 


Athugasemdir

Nýjast