Benedikt ætlar ekki inn í núverandi ríkisstjórn

Benedikt Jóhannesson formaður Viðreisnar.
Benedikt Jóhannesson formaður Viðreisnar.

Bene­dikt Jó­hann­es­son, formaður Viðreisn­ar, fékk tilboð í hádeginu í gær frá Bjarna Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins um að taka sæti í núverandi ríkisstjórn Sjálf­stæðis- og Fram­sókn­ar­flokks­. Benedikt afþakkaði boðið. Mbl.is sagði frá þessu. Hann sagði það löngu ljóst að Viðreisn ætlaði ekki að ganga inn í þessa ríkisstjórn.

Benedikt vildi hins vegar ekki útiloka að taka þátt í ríkisstjórnarsamstarfi með Framsóknarflokknum.

„Við ætt­um að reyna að opna viðræðurn­ar meira en við höf­um verið að gera í ljósi þess sem forset­inn hef­ur sagt,“ sagði Bene­dikt við mbl.is


Athugasemdir

Nýjast