Akureyringar sáu ekki til sólar

Akureyri tapaði í dag gegn Haukum.
Akureyri tapaði í dag gegn Haukum.

Akureyringar mættu Haukum í Olísdeild karla í handbolta klukkan 16 í dag í Hafnarfirði, leiknum var að ljúka með öruggum sigri Hauka 29:19.  Akureyringar sáu aldrei til sólar í leiknum og sigur Haukamanna afar verðskuldaður.

Markahæstur í liði Akureyringa var Kristján Orri Jóhannsson með sex mörk.

Næsti leikur Akureyringa er í KA heimilinu gegn Fram 17. desember nk.

 

 


Athugasemdir

Nýjast