-
mánudagur, 22. apríl
Mörg þúsund manns árlega á faraldsfæti suður til lækninga
Þjónusta Sjúkrahússins á Akureyri hefur dregist saman undanfarin misseri. Því fer fjarri að SAK nái að uppfylla það hlutverk sem skilgreint er í lögum um heilbrigðisþjónustu, þar sem m.a. segir að sjúkrahúsið eigi að veita þjónustu í nær öllum sérgreinum lækninga og vera varasjúkrahús Landspítala -
mánudagur, 22. apríl
Lögreglan á Norðurlandi eystra rannsakar andlát
Eftirfarandi tilkynningu sendi lögreglan á Norðurlandi eysta frá sér nú rétt í þessu. Klukkan 04:30 aðfaranótt mánudags var lögreglan á Norðurlandi eystra kölluð að fjölbýlishúsi á Akureyri. Fyrstu lögreglumönnum sem komu á vettvang var vísað á meðvitundarlausa konu í íbúðinni og hófust endurlífgunartilraunir þegar í stað. Læknir og sjúkraflutningamenn komu einnig á vettvang en tilraunir til endurlífgunar báru ekki árangur og var konan úrskurðuð látin á vettvangi.- 22.04
-
mánudagur, 22. apríl
Svona er síminn hannaður til að stela athygli okkar
Af hverju er svona erfitt að leggja frá sér símann? Er efnið sem þar er að finna alltaf svo mikilvægt og áríðandi að það gengur fyrir þau samskipti sem við erum að eiga við fólkið í kringum okkur? Förum við í símann þegar að við erum undir stýri? (Já það telst líka með að gera það á rauðu ljósi). Lengjum við klósettferðirnar okkar til að vera lengur í símanum? Leggjum við símann alltaf á borðið á fundum, í kaffitímanum eða við matarboðið og leyfum þannig tilkynningunum á skjánum að stela athygli okkar? Setjum við börnin okkar fyrir framan skjá til þess að kaupa okkur sjálfum skjátíma? Leitum við í símann alltaf þegar að okkur leiðist? Erum við hrædd við að vera vandræðaleg á almannafæri og förum í símann til að þykjast vera að sinna einhverju mikilvægu frekar en að líta upp og leyfa huganum að reika? Dettum við út í samtölum við annað fólk því við ætluðum að fletta einhverju eldsnöggt upp en rákumst svo á eitthvað annað sem greip athygli okkar? Getum við átt gæðastundir með fjölskyldunni án þess að láta símann trufla okkur?- 22.04
-
sunnudagur, 21. apríl
Lokaorðið - Forgangslistinn
Eftir því sem ég eldist verð ég sífellt þakklátari fyrir að fá að ganga lífsins veg með fólkinu mínu. Við erum fámenn þjóð og höfum í gegnum tíðina staðið þétt saman. Við höfum lyft grettistaki í forvörnum vegna slysa á sjó og landi.- 21.04
-
sunnudagur, 21. apríl
Hörður Óskarsson styrkir Krabbameinsfélagið
Hörður Óskarsson færði Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis ríflega hálfa milljón króna sem er andvirði af sölu á skarti úr gamalli mynt sem hann selur undir nafninu Mynthringir og alls konar.- 21.04
-
sunnudagur, 21. apríl
Háskólinn á Akureyri Endurskoðun jafnréttisáætlunar í fullum gangi
Um þessar mundir stendur yfir endurskoðun á áætlun háskólans um jafna stöðu kynjanna sem gildir frá 2021 til 2024 og jafnréttisráð Háskólans á Akureyri stendur að þeirri vinnu. Jafnréttisráð HA er öflugt og virkt ráð sem heldur reglulega fundi og tekur fyrir og fylgir eftir erindum starfsfólks og stúdenta. Þá er boðið upp á fræðslu innan skólans ásamt þátttöku í skipulagi Jafnréttisdaga sem haldnir eru árlega. Ráðið hefur starfskraft á sínum snærum, Sæunni Gísladóttur, sérfræðing hjá Rannsóknamiðstöð Háskóla Akureyrar.- 21.04
-
sunnudagur, 21. apríl
Andrésar andarleikarnir haldnir í 48 sinn
Andrésar andarleikarnir í skíðaíþróttum verða haldnir í Hlíðarfjalli í næstu viku, dagana 24.-27. apríl. Skíðafélag Akureyrar heldur leikana og er þetta í 48. sinn sem efnt er til þeirra.- 21.04
-
laugardagur, 20. apríl
Stöðug aukning í blóð- og krabbameinsmeðferðum hjá SAk
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis afhenti formlega á dögunum almennu göngudeildinni á SAk þrjá meðferðarstóla og þrjú hliðarborð. Mikil aukning hefur orðið í blóð- og krabbameinsmeðferðum undanfarin ár og stefnir í að svo verði áfram.- 20.04
-
laugardagur, 20. apríl
Formannaskipti í Sjálfsbjörg, félagi fatlaðara á Akureyri og nágrenni
Formannaskipti urðu í Sjálfsbjörg, félagið fatlaðra á Akureyri og nágrenni á aðalfundi nýverið. Herdís Ingvadóttir lét af formennsku eftir 24 ár. Hún getur að sögn gengið stolt frá borði eftir farsæla setu í stól formanns. Hún hafði um 6 ára skeið þar á undan setið í stjórn félagsins eða í allt í þrjá áratugi.- 20.04
Aðsendar greinar
-
Skúli B. Geirdal skrifar
Svona er síminn hannaður til að stela athygli okkar
Af hverju er svona erfitt að leggja frá sér símann? Er efnið sem þar er að finna alltaf svo mikilvægt og áríðandi að það gengur fyrir þau samskipti sem við erum að eiga við fólkið í kringum okkur? Förum við í símann þegar að við erum undir stýri? (Já það telst líka með að gera það á rauðu ljósi). Lengjum við klósettferðirnar okkar til að vera lengur í símanum? Leggjum við símann alltaf á borðið á fundum, í kaffitímanum eða við matarboðið og leyfum þannig tilkynningunum á skjánum að stela athygli okkar? Setjum við börnin okkar fyrir framan skjá til þess að kaupa okkur sjálfum skjátíma? Leitum við í símann alltaf þegar að okkur leiðist? Erum við hrædd við að vera vandræðaleg á almannafæri og förum í símann til að þykjast vera að sinna einhverju mikilvægu frekar en að líta upp og leyfa huganum að reika? Dettum við út í samtölum við annað fólk því við ætluðum að fletta einhverju eldsnöggt upp en rákumst svo á eitthvað annað sem greip athygli okkar? Getum við átt gæðastundir með fjölskyldunni án þess að láta símann trufla okkur? -
Ásdís Rán skrifar
Boðskapur frá forsetaframbjóðanda
Það hafa kannski margir klórað sér í hausnum yfir þátttöku minni í forsetakosningunum þar sem ég stíg nú eins og landkönnuður á nýjum slóðum og tek með mér ný og fersk sjónarhorn, smá húmor og djúpstæða trú á mátt hins ómögulega. Ég er eflaust ekki hinn hefðbundni frambjóðandi en ég er án efa ferskur blær inn í flokk frambjóðenda og það er einmitt það sem gerir þetta stóra verkefni svo skemmtilegt og hvetjandi. -
Ágústa Ágústsdóttir skrifar
Nýr Kjalvegur – Hraðbraut í gegnum hálendið
Á Alþingi liggur nú fyrir þingsályktunartillaga um endurnýjun vegar yfir Kjöl með einkaframkvæmd en nokkrum sinnum hefur verið reynt að mæla fyrir málinu í gegnum tíðina án árangurs. -
Sigríður Hrund Pétursdóttir skrifar
1500 FRÆ
Meðmæli eru frækorn. Við erum að sá og fjárfesta til framtíðar. Við munum enn fremur uppskera eins og við sáum. Ef við sáum þeirri hegðun að frambjóðendur verði að vera þekkt andlit, með reynslu úr pólitík eða opinberri þjónustu – þá uppskerum við eftir því. Umsóknarkröfum ætti þá að breyta til samræmis hið snarasta sem og heiti starfsins. Embætti fyrir útvalda. Embætti fyrir fræga. Embætti fyrir völd og pólitík.
Mannlíf
-
Hörður Óskarsson styrkir Krabbameinsfélagið
Hörður Óskarsson færði Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis ríflega hálfa milljón króna sem er andvirði af sölu á skarti úr gamalli mynt sem hann selur undir nafninu Mynthringir og alls konar. -
Háskólinn á Akureyri Endurskoðun jafnréttisáætlunar í fullum gangi
Um þessar mundir stendur yfir endurskoðun á áætlun háskólans um jafna stöðu kynjanna sem gildir frá 2021 til 2024 og jafnréttisráð Háskólans á Akureyri stendur að þeirri vinnu. Jafnréttisráð HA er öflugt og virkt ráð sem heldur reglulega fundi og tekur fyrir og fylgir eftir erindum starfsfólks og stúdenta. Þá er boðið upp á fræðslu innan skólans ásamt þátttöku í skipulagi Jafnréttisdaga sem haldnir eru árlega. Ráðið hefur starfskraft á sínum snærum, Sæunni Gísladóttur, sérfræðing hjá Rannsóknamiðstöð Háskóla Akureyrar. -
Frú Ragnheiður - Færri í nálaskiptaþjónustu en fleiri komu í bílinn
Fjöldi einstaklinga sem leitaði til Frú Ragnheiðar árið 2023 var 51 í 584 heimsóknum en árið 2022 voru einstaklingarnir 46 í 412 heimsóknum. Af þessum fjölda voru 10 viðbragðsaðilar og einstaklingar sem leituðu til verkefnisins til að fá Nyxoid nefúðann. Ekki er því um fjölgun skjólstæðinga í nálaskiptaþjónustu að ræða en þeim fækkaði um fimm milli ára, úr 46 í 41. -
Fyrsta alþjóðlega hótelið á landsbyggðinni mun opna á Akureyri árið 2025
Fyrirhugað er að fyrsta alþjóðlega hótelið á landsbyggðinni mun opna á Akureyri 2025 undir merkjum Curio Collection by Hilton. Framkvæmdin verður í samvinnu við Bohemian Hotels. „Bohemian Hotels ehf., í samstarfi við Hilton, tilkynnir með stolti undirritun tímamótasamnings um byggingu og rekstur tveggja hágæða hótela á Íslandi. Þessir samningar marka ákveðin tímamót í hótelgeiranum á Íslandi og færa Akureyri gistingu og þægindi á heimsmælikvarða til jafns við Reykjavík" segir i tilkynningu frá Bohemian Hotels. -
Kuldatíð seinkar vorverkum
Talsverðar líkur er á að kal verði í túnum í Svarfaðardal en sennilega sleppa önnur svæði í héraðinu betur þó ekki sé það fullvíst. Kuldatíð seinkar vorverkum bænda og gæti í versta falli orðið til þess að spretta fari seinna af stað en vanalega, snjór er yfir öllum túnum og því ekki hægt að bera á.
Íþróttir
-
KA vann bæjarslaginn
KA vann Þór í úrslitaleik Kjarnafæðismótsins 6-5 eftir vítaspyrnukeppni. Óhætt er að segja að leikurinn hafi verið tvískiptur, Þór yfirspilaði KA í fyrri hálfleik og uppskáru tvö mörk sem Sigfús Fannar Gunnarsson og Aron Ingi Magnússon skoruðu og fóru því með verðskuildaða forustu í hálfleik. -
Þórsstúlkur heiðraðar
Aðalstjórn Þórs notaði tækifærið sem gafst í kvöld í hálfleik í viðreign karlaliðs Þórs við Skallagrím í 1 deild Íslandsmótsins í körfubolta og heiðraði silfurhafa helgarinnar kvennalið félagsins og þjálfarateymi. Sannarlega vel til fundið og óhætt að segja að liðið hefur gert heilmikið í því að koma Þór á kortið. Þórir Tryggvason var auðvitað í Höllinni og gaukaði þessari mynd að vefnum. -
Ekki að sinni en það koma dagar
Nú er ný lokið bikarúrslitaleik kvenna í körfubolta þar sem Þórstelpur mætttu liði Kelfavikur. Það var lið Keflavikur sem sigraði 89 – 67, staðan í hálfleik var 46 – 34 fyrir Keflavik og 16 bikarmeistaratitill félagsins staðreynd. -
Þórsstelpur leika til úrslita í VÍS bikarnum í körfubolta
Lið Þórs tryggði sér sæti í úrslitaleik bikarkeppni KKÍ í kvöld þegar þær lögðu sterkt lið Grindavíkur með 79 stigum gegn 75 stigum Grindavikurstelpna í hörkuleik sem fram fór Laugardalshöllinni. -
Körfubolti: Sögulegur dagur hjá Þórsliðinu!
Kvennalið Þórs í körfubolta mætir liði Grindavíkur í undanúrslitum VÍS-bikarkeppninnar í Laugardalshöllinni í kvöld. Leikurinn hefst kl. 20.