Vikudagur

Vikudagur - Sjálfstæður norðlenskur fréttamiðill

Flýtilyklar

Fréttir

Hræðsluáróður

fimmtudagur 17.jún.10 11:56
Agnes Arnardóttir skrifar

Þá er 17 júní á fimmtudaginn. Þjóðhátíðardagur okkar íslendinga þar sem við fögnum sjálfstæði okkar. Af því tilefni velti ég því fyrir mér hversu sjálfstæð við erum í raun. Stór hluti þjóðarinnar bundinn í skuldavef fjármálafyrirtækja sem sitja eins og púkinn á fjósbitanum, fitna og fitna. Fólk sem skuldar meira en það ræður við er ekki frjálst, getur ekki flutt sig um set, hvorki á milli landshluta né til annarra landa. Það er fast í kóngulóavef. Búið að missa kjarkinn og sjálfsvirðinguna. Fólk er hrætt við að missa allt sitt.  Þegar fólk er hrætt þá er það auðvelt skotmark kúgara. Það er akkúrat það sem við erum í dag, fórnalömb kúgara. Kúgara sem eru fjármálafyrirtæki. Þau sömu og komu okkur í þessa stöðu. Rændu okkur ærunni og aleigunni. Síðan hafa þau komið með lausnir til að auðvelda okkur að borga ránið þ.e. hjálpa þeim að ræna okkur meira en þau hafa nú þegar gert. Annars er mér ekki vel við að tala um fjármálafyrirtæki sem fyrirbæri, það er náttúrulega fólk sem þar stjórnar, fólk eins og við hin ,nema hvað það hefur meiri völd í augnablikinu. En vonandi ekki lengi enn. Við getum tekið þessi völd frá þeim með samstöðu. Notað það sem kemur þeim verst. Tekið okkur saman og lýst okkur gjaldþrota í stórum hópum. 20 þúsund heimili og 5 þúsund fyrirtæki, allir á sama tíma. Það er ekki auðvelt fyrir þau að ráða við það. En áður en farið verður í þær aðgerðir þá vörum við fjármagnseigendur við þeim svo þeir geti tekið peningana sína út úr bankanum og fjárfest í ríkisskuldabréfum eða einhverju örðu svo þeir brenni ekki inni.

Ég sjálf er búin að vera í marga mánuði að reyna að ná einhverju vitrænu samkomulagi við minn banka, ríkisbankann Landsbanka Íslands. En ekkert gengið. Búin að láta draga mig á asnaeyrunum í allt of langan tíma. Nú stend ég frammi fyrir því að láta kúga mig í þrot eða taka til minna ráða. Ég vil heldur taka til minna ráða en að láta kúga mig í þrot.

Hvað með þig..? Ertu með?

Ef svo er þá endilega hafðu samband og við skulum sýna hvers vegna við höldum upp á 17. Júní.

Það eina sem getur stoppað það að þetta verði framkvæmt er að stjórnvöld grípi inní með sanngjörnum lausnum. Í nóvember 2008 ræddi ég við þáverandi viðskiptaráðherra og benti á aðgerð sem ég taldi vera réttasta í stöðunni sem þá var kominn upp. Hann hlustaði stundarkorn og vísaði þessu svo frá með þeim orðum að þetta væri ekki hægt. Ég er enn á sömu skoðun og þá og segi þetta er hægt. Annað er hræðsluáróður.

Öll lán sem eru gengistryggð, verði sett yfir í íslenskar krónur á því gengi sem var þegar lánin voru tekin. Það sem fólk er nú þegar búið að greiða af röngum höfuðstól verði gert upp og notað til lækkunar.  Þetta á við bæði um fyrirtæki og einstaklinga. Höfuðstóll verðtryggðra lána verði færður niður. Tekið meðaltal af lánskjaravísitölu síðustu 5 ára fyrir hrunið og það notað sem nýtt viðmið.

Miðað við það hversu óvarlega fjármálafyrirtæki fóru í útlánum síðustu árin fyrir hrun þá er ekki hægt að gera ráð fyrir að þessar aðgerðir hjálpi öllum. Þeir sem eru í þeirri stöðu að þessar aðgerðir duga ekki til, þeir fái aukaaðstoð. Fjármálafyrirtæki sem lánuðu fólki sem vitað  var fyrirfram að það gæti  ekki greitt af lánum sínum, þurfa að taka þá ábyrgð á sig. Annað er ekki í stöðunni.

Höfundur er venjulegur Íslendingur sem fengið hefur nóg.

 


Til baka | Senda frétt


Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf