Vikudagur

Vikudagur - Sjálfstæður norðlenskur fréttamiðill

Flýtilyklar

Fréttir

Furðulegar aðferðir í forvarnarmálum

mánudagur 14.jún.10 20:53

Pétur Guðjónsson skrifar

Nýlega luku grunnskólar bæjarins prófum og halda nú út í vorið í sumarfrí frá skólanum. Við þekkjum það að próflokum fylgir unglingadrykkja sem reynt hefur verið að sporna við með ágætum árangri.  Og betur má alltaf ef duga skal.

En.

Í síðustu viku auglýstu N3 ásamt plötusnúðnum Óla Geir próflokadjamm í Sjallanum. Sérstakur gestur var Kristmundur Axel, vinsælasti rappari landsins í dag. Jafnvel þó að auglýsingin hefði verið mjög skýr, sagt hverjir kæmu fram, hvatt til þess að skemmta sér án áfengis, vísað til strangrar gæslu með því að minna á skilríkin, þótti ástæða til þess að koma af stað hræðsluáróðri fyrir ballið.

Forvarnarfulltrúi Akureyrar, Gréta Kristjánsdóttir sendi tilkynningu í gegnum Mentor.is og varaði við þessum dansleikjum sem voru fyrir 14 ára og eldri og 16 ára og eldri. Þessi póstur dreifðist víða og hafði mikil áhrif.

Í tilkynningunni segir m.a: „Ljóst er að hér er verið að höfða til mjög ungra krakka og ekki er ljóst hverskonar umgjörð verður fyrir ungmennin á þessari skemmtun. Er það N3 hópurinn og nokkrir úr öðrum hópi, sem kallar sig SPLASH-partý og hafa boðið upp á viðburði eins og Dirty-nights, stelpur sem dansa í búrum, undirfatasýningar og meðal annarra  tilheyra þessum hópi, Óli Geir og Júlí Heiðar sem umræddur hefur verið vegna vægast sagt dónalegra texta."

Þessi póstur er fullur af eyðum sem foreldrar hafa fyllt inn í, síður en svo okkur í hag. Þarna er til dæmis mjög óljóst hvort við séum hluti af SPLASH-genginu með stelpur í búrum eða undirfatasýningar. 

Hér koma nokkrar staðreyndir varðandi þessa dansleiki:

  • - Þó Óli Geir sé hluti af Splash hópnum stóð hann ekki fyrir neinu ósiðlegu þetta kvöld. Hann kom upp á svið og spilaði tónlist af geisladiskum. Þar fór ekkert ósæmilegt fram.
  • - Það þarf varla að taka fram að þarna voru engar stelpur í búrum.
  • - Engin undirfatasýning.
  • - Þetta var undirbúið í samráði við bæjarlögmann sem skrifaði einum okkar tölvupósta og setti fram kröfur varðandi þetta dansleikjahald, sem við fórum eftir.
  • - Við vorum með stranga gæslu.
  • - Júlí Heiðar kom ekki fram á þessu balli heldur Kristmundur Axel.

Hefði ekki verið faglegra af forvarnarfulltrúa Akureyrar að kynna sér málið þar sem hún hafði svona miklar áhyggjur? Þetta hefur orðið til þess að mikil tortryggni hefur orðið í okkar garð og einn aðalstyrktaraðili okkar hefur tilkynnt okkur að trúlega muni hann þurfa að slíta samstarfi við okkur. 

Það sem okkur gremst líka er að fyrir verlsunarmannahelgina í fyrra kom aðili að máli við mig, þar sem við vorum að fara að halda dansleiki fyrir 16 ára og eldri þá helgi.  Þá hafði hún beint eftir áðurnefndum forvarnarfulltrúa að heyrst hefði að við værum með drykkjubúr á bak við sviðið á þessum böllum, þar sem krakkarnir gætu komið og fengið sér áfenga drykki.  Þetta er rangt.

Þegar ég svo hringi í forvarnarfulltrúan sagði hún að þetta hefði hún heyrt en vildi ekki tjá sig um hvaðan þetta kæmi.  Þá; og takið eftir, einmitt þá sagði ég við hana í síma að við vildum endilega eiga gott samstarf um allar þær forvarnir sem mögulegt væri.  Þess vegna eru síðustu atburðir enn meira svekkjandi.

N3 plötusnúðar eru þrír fullorðnir karlmenn sem eru eldri en tvævetra í bransanum.  Við leggjum okkur fram við að skemmta fólki á öllum aldri, löglega og siðlega.

Við stöndum ekki fyrir unglingadrykkju.

Við stöndum ekki fyrir tóbaksleyslu unglinga.

Við stöndum ekki fyrir kvenfyrirlitningu.

Við viljum að unglingar skemmti sér á heilbrigðan hátt á dansleikjum hjá okkur.

Og það er best að það komi fram hér, ef svo færi að við héldum einhvern tímann aftur unglingadansleiki, þá eru foreldrar og hafa alltaf verið velkomnir á alla dansleiki okkar og fá frítt inn ef þeir vilja sjá hvað fer fram.  Það getur meira að segja vel verið að við hellum á könnuna handa þeim.

Vonandi verða þessi skrif til þess að forvarnarfulltrúinn á Akureyri vinni frekar með þeim skemmtikröftum sem ætla að skemmta unglingum heldur en á móti, fyrst og fremst ungmennum í hag.

Höfundur er hluti af N3 - sem eru plötusnúðar og viðburðarstjórnendur og starfar auk  þess sem meðferðarfulltrúi á unglingaheimili.

 


Til baka | Senda frétt


Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf