Vikudagur

Vikudagur - Sjálfstæður norðlenskur fréttamiðill

Flýtilyklar

Fréttir

Bið eftir sálfræðiþjónustu fyrir börn 3-4 mánuðir

miðvikudagur 10.mar.10 12:54
Líney Helgadóttir verkefnastjóri í sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla á fjölskyldudeild Akureyrar mætti á fund félagsmálaráðs í vikunni. Fram kom að mikið álag hefur verið á starfsfólki í sérfræðiþjónustunni og hafa sálfræðingar ekki náð að sinna leik- og grunnskólabörnum sem skyldi. Biðlistar hafa lengst og er bið eftir sálfræðiþjónustu nú þrír til fjórir mánuðir.

 

 

Starfsmenn telja brýna þörf á aukningu á stöðugildum úr tveimur og hálfu stöðugildi í minnst þrjú til þess að hægt verði að sinna sálfræðiþjónustu skólabarna eins og þörf er á. Félagsmálaráð samþykkti að óska eftir sameiginlegri geinargerð um ráðgjafaþjónustu við börn og fjölskyldur þeirra frá fjölskyldudeild, heilsugæslustöð og skóladeild.


Til baka | Senda frétt


Veðrið

Akureyri
VNV 2 m/s
9 °C
Reykjavíkurflugvöllur
V 3 m/s
11 °C
Vaðlaheiði
m/s
°C
Siglufjörður
NNA 14 m/s
8 °C
Ólafsfjörður
SSV 3 m/s
8 °C

Færð á vegum (NA)
Skoða veðurkort

Könnun

Ertu ánægð/ánægður með ráðningu á nýjum bæjarstjóra á Akureyri?






Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf