-
fimmtudagur, 18. apríl
Götuhornið - Gamlingi á villigötum
Mig hefur lengi langað til að senda bréf til Götuhornsins. Mér hefur legið ýmislegt á hjarta og fannst það eiga fullt erindi til lesenda. Þetta hefur þó ekki getað orðið fyrr en nú vegna vandræða sem ég lenti í og þurfti að greiða úr. -
fimmtudagur, 18. apríl
Fyrsta alþjóðlega hótelið á landsbyggðinni mun opna á Akureyri árið 2025
Fyrirhugað er að fyrsta alþjóðlega hótelið á landsbyggðinni mun opna á Akureyri 2025 undir merkjum Curio Collection by Hilton. Framkvæmdin verður í samvinnu við Bohemian Hotels. „Bohemian Hotels ehf., í samstarfi við Hilton, tilkynnir með stolti undirritun tímamótasamnings um byggingu og rekstur tveggja hágæða hótela á Íslandi. Þessir samningar marka ákveðin tímamót í hótelgeiranum á Íslandi og færa Akureyri gistingu og þægindi á heimsmælikvarða til jafns við Reykjavík" segir i tilkynningu frá Bohemian Hotels.- 18.04
-
fimmtudagur, 18. apríl
Kuldatíð seinkar vorverkum
Talsverðar líkur er á að kal verði í túnum í Svarfaðardal en sennilega sleppa önnur svæði í héraðinu betur þó ekki sé það fullvíst. Kuldatíð seinkar vorverkum bænda og gæti í versta falli orðið til þess að spretta fari seinna af stað en vanalega, snjór er yfir öllum túnum og því ekki hægt að bera á.- 18.04
-
fimmtudagur, 18. apríl
Goblin opnar á Glerártorgi
„Eins leitt og okkur þykir að yfirgefa fallega miðbæinn okkar, erum við afar spennt fyrir þessum flutningum og hlökkum til að bjóða viðskiptavini okkar velkomna á Glerártorgi,“ segja þau Þorsteinn Marinósson og Ásta Hrönn sem eiga Goblin. Starfsemin hefur verið við Brekkugötu undanfarin ár en flyst nú í rýmra húsnæði á Glerártorgi.- 18.04
-
fimmtudagur, 18. apríl
Lystigarðurinn - Kostar meira að pissa
Gjald fyrir afnot af salernisaðstöðu í Lystigarðinum á Akureyri hækkar 1. maí næstkomandi, út 150 krónum eins og áður var í 300 krónur. Gjaldið verður endurskoðað við gerð gjaldskrár Umhverfis- og mannvirkjaráðs Akureyrarbæjar árlega.- 18.04
-
fimmtudagur, 18. apríl
Bókakynning á Amtsbókasafninu á Akureyri á morgun.
Kristín Guðmundsdóttir höfundur bókarinnar Tólf lyklar verður með kynningu á bókinni á Amtsbókasafninu á morgun og hefst kynningin klukkan 15:30. Bókin er fyrir fólk af erlendum uppruna sem er búið með grunninn í íslensku.- 18.04
-
fimmtudagur, 18. apríl
Barnamenningarhátíð á Akureyri
Barnamenningarhátíð á Akureyri er nú haldin í sjöunda sinn og hefur vaxið ár frá ári. Hátíðin teygir sig yfir allan aprílmánuð með það að markmiði að hvetja börn og fjölskyldur þeirra til að taka virkan þátt í menningarlífi bæjarins sér að kostnaðarlausu.Á dagskrá eru fleiri en 50 viðburðir af ýmsu tagi.- 18.04
-
miðvikudagur, 17. apríl
Sigríður Örvarsdóttir nýr safnstjóri Listasafnsins
Sigríður Örvarsdóttir hefur verið ráðin nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri. Sigríður er með MA gráðu í safnafræði frá Háskóla Íslands (2018), BA gráðu í textílhönnun frá Seminaret for Kunst og Haandværk í Danmörku (2001), ásamt meistaranámi í prjónahönnun frá Academie Royale des Beux-Arts (2014) og viðbótardiplómu í hagnýtri jafnréttisfræði frá Háskóla Íslands (2009). Auk þess er hún með kennsluréttindi í grunn- og framhaldsskóla (2001). Sigríður hefur starfað sem safnstjóri og forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga frá árinu 2022 og veitir sem slík forstöðu Myndlistarsafni Þingeyinga en safneign þess telur um 1.900 verk. Í starfi sínu stýrir hún starfseminni og ber ábyrgð á öllum þáttum rekstrar, allri fjárhags- og verkefnaáætlanagerð, bókhaldi, mannauðsmálum, rekstri fasteigna og faglegu starfi sjö annarra safneigna og fjögurra sýningarstaða. Sigríður starfaði sem verkefnastjóri sýninga hjá Akureyrarbæ sumarið 2021. Í því starfi sinnti hún sýningagerð, rannsóknarvinnu og kynningarmálum. Árin 2019 til 2020 var hún sjálfstætt starfandi ráðgjafi við gerð safnastefnu Akureyrarbæjar. Hún gegndi starfi safnafulltrúa Listasafnsins á Akureyri árið 2012 og árin 2010 og 2012 starfaði hún sem verkefnastjóri samsýninga og ritstjóri safnahandbóka fyrir söfn á Norður- og Norðausturlandi. Árin 2008 til 2012 starfaði hún sem safnkennari við Minjasafnið á Akureyri. Sigríður hefur reynslu af kennslu í list- og hönnunargreinum á öllum skólastigum innan lands sem utan, m.a. hjá Listaháskóla Íslands og Marbella Design Academy á Spáni. Hún hefur tekið þátt í alheimsþingi ICOM, alþjóðaráðs safna og verið fulltrúi þess í Rannsóknarsetri í safnafræðum við Háskóla Íslands. Alls bárust 14 umsóknir um starfið.- 17.04
-
miðvikudagur, 17. apríl
Virðist sem skorti pólitískan vilja
Stjórn og trúnaðarráð Framsýnar kom saman til fundar í gær. Mörg mikilvæg mál voru til umræðu á fundinum m.a. samgöngumál. Ákveðið var að hvetja Vegagerðina og stjórnvöld til að styðja við áætlunarflug um Húsavíkurflugvöll auk þess styðja betur við Loftbrúna sem skiptir íbúa á landsbyggðinni verulega miklu máli. Fjölga þarf ferðum sem menn geta nýtt sér á þessum sérstöku kjörum- 17.04
Aðsendar greinar
-
Margrét Þóra Þórsdóttir skrifar
Nýr Kjalvegur – Hraðbraut í gegnum hálendið
Á Alþingi liggur nú fyrir þingsályktunartillaga um endurnýjun vegar yfir Kjöl með einkaframkvæmd en nokkrum sinnum hefur verið reynt að mæla fyrir málinu í gegnum tíðina án árangurs. -
Sigríður Hrund Pétursdóttir skrifar
1500 FRÆ
Meðmæli eru frækorn. Við erum að sá og fjárfesta til framtíðar. Við munum enn fremur uppskera eins og við sáum. Ef við sáum þeirri hegðun að frambjóðendur verði að vera þekkt andlit, með reynslu úr pólitík eða opinberri þjónustu – þá uppskerum við eftir því. Umsóknarkröfum ætti þá að breyta til samræmis hið snarasta sem og heiti starfsins. Embætti fyrir útvalda. Embætti fyrir fræga. Embætti fyrir völd og pólitík. -
Aðsend athugasemd skrifar
Í ljósi fréttar um vorboðann ljúfa
Vefnum barst tölvupóstur með myndum og texta frá konu sem átti leið um miðbæ Akureyrar i morgun. Eins og sjá má var henni og liklega fleirum sem þar áttu leið um misboðið. -
Björn Snæbjörnsson skrifar
Berjumst fyrir okkar málefnum, en til þess þurfum við og okkar samtök að glaðvakna.
Undanfarið hefur nokkuð verið rætt um kjör okkar eldri borgara og hvernig við séum afskipt þegar kemur að kjarabótum.
Mannlíf
-
Fyrsta alþjóðlega hótelið á landsbyggðinni mun opna á Akureyri árið 2025
Fyrirhugað er að fyrsta alþjóðlega hótelið á landsbyggðinni mun opna á Akureyri 2025 undir merkjum Curio Collection by Hilton. Framkvæmdin verður í samvinnu við Bohemian Hotels. „Bohemian Hotels ehf., í samstarfi við Hilton, tilkynnir með stolti undirritun tímamótasamnings um byggingu og rekstur tveggja hágæða hótela á Íslandi. Þessir samningar marka ákveðin tímamót í hótelgeiranum á Íslandi og færa Akureyri gistingu og þægindi á heimsmælikvarða til jafns við Reykjavík" segir i tilkynningu frá Bohemian Hotels. -
Kuldatíð seinkar vorverkum
Talsverðar líkur er á að kal verði í túnum í Svarfaðardal en sennilega sleppa önnur svæði í héraðinu betur þó ekki sé það fullvíst. Kuldatíð seinkar vorverkum bænda og gæti í versta falli orðið til þess að spretta fari seinna af stað en vanalega, snjór er yfir öllum túnum og því ekki hægt að bera á. -
Goblin opnar á Glerártorgi
„Eins leitt og okkur þykir að yfirgefa fallega miðbæinn okkar, erum við afar spennt fyrir þessum flutningum og hlökkum til að bjóða viðskiptavini okkar velkomna á Glerártorgi,“ segja þau Þorsteinn Marinósson og Ásta Hrönn sem eiga Goblin. Starfsemin hefur verið við Brekkugötu undanfarin ár en flyst nú í rýmra húsnæði á Glerártorgi. -
Lystigarðurinn - Kostar meira að pissa
Gjald fyrir afnot af salernisaðstöðu í Lystigarðinum á Akureyri hækkar 1. maí næstkomandi, út 150 krónum eins og áður var í 300 krónur. Gjaldið verður endurskoðað við gerð gjaldskrár Umhverfis- og mannvirkjaráðs Akureyrarbæjar árlega. -
Bókakynning á Amtsbókasafninu á Akureyri á morgun.
Kristín Guðmundsdóttir höfundur bókarinnar Tólf lyklar verður með kynningu á bókinni á Amtsbókasafninu á morgun og hefst kynningin klukkan 15:30. Bókin er fyrir fólk af erlendum uppruna sem er búið með grunninn í íslensku.
Íþróttir
-
KA vann bæjarslaginn
KA vann Þór í úrslitaleik Kjarnafæðismótsins 6-5 eftir vítaspyrnukeppni. Óhætt er að segja að leikurinn hafi verið tvískiptur, Þór yfirspilaði KA í fyrri hálfleik og uppskáru tvö mörk sem Sigfús Fannar Gunnarsson og Aron Ingi Magnússon skoruðu og fóru því með verðskuildaða forustu í hálfleik. -
Þórsstúlkur heiðraðar
Aðalstjórn Þórs notaði tækifærið sem gafst í kvöld í hálfleik í viðreign karlaliðs Þórs við Skallagrím í 1 deild Íslandsmótsins í körfubolta og heiðraði silfurhafa helgarinnar kvennalið félagsins og þjálfarateymi. Sannarlega vel til fundið og óhætt að segja að liðið hefur gert heilmikið í því að koma Þór á kortið. Þórir Tryggvason var auðvitað í Höllinni og gaukaði þessari mynd að vefnum. -
Ekki að sinni en það koma dagar
Nú er ný lokið bikarúrslitaleik kvenna í körfubolta þar sem Þórstelpur mætttu liði Kelfavikur. Það var lið Keflavikur sem sigraði 89 – 67, staðan í hálfleik var 46 – 34 fyrir Keflavik og 16 bikarmeistaratitill félagsins staðreynd. -
Þórsstelpur leika til úrslita í VÍS bikarnum í körfubolta
Lið Þórs tryggði sér sæti í úrslitaleik bikarkeppni KKÍ í kvöld þegar þær lögðu sterkt lið Grindavíkur með 79 stigum gegn 75 stigum Grindavikurstelpna í hörkuleik sem fram fór Laugardalshöllinni. -
Körfubolti: Sögulegur dagur hjá Þórsliðinu!
Kvennalið Þórs í körfubolta mætir liði Grindavíkur í undanúrslitum VÍS-bikarkeppninnar í Laugardalshöllinni í kvöld. Leikurinn hefst kl. 20.