Flýtilyklar
- Björn Friðþjófsson framkvæmdastjóri Tréverks á Dalvík afhenti Stefáni B. Sigurðssyni rektor HA, lykilinn að nýja húsnæðinu.
Verkþekking og reynsla er ekki keypt út í búð
sunnudagur 5.sep.10 19:33Björn Friðþjófsson framkvæmdastjóri Tréverks á Dalvík, sem var aðalverktakinn við nýbyggingu Háskólans á Akureyri, færði skólanum að gjöf, fyrir hönd fyrirtækisins, veglegt ræðupúlt við vígslu hússins á dögunum. Einnig afhenti hann Stefáni B. Sigurðssyni lykilinn að nýja húsnæðinu, því til staðfestingar að fyrirtækið hefði lokið framkvæmdum.
-
-
Íbúar fari með endurvinnslu- sorp út á hverfisvelli
sunnudagur 5.sep.10 11:03Fulltrúar L-listans í framkvæmdaráði Akureyrarbæjar samþykktu á dögunum að farin yrði leið B í sorphirðu á Akureryi, en fjallað var um sorpmál og framtíðarsýn á fundi ráðsins á dögunum. Tvær leiðir, nefndar A og B voru til umfjöllunar og sýndist sitt hverjum.
-
Stjarnan lagði Þór/KA að velli
laugardagur 4.sep.10 16:02Stjarnan lagði Þór/KA 3:2 á Stjörnuvelli í dag í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu. Mateja Zver skoraði bæði mörk Þórs/KA en þær Soffía Gunnarsdóttir, Katie McCoy og Inga Birna Friðjónsdóttir skoruðu mörk Stjörnunar. Inga Birna skoraði sigurmarkið tveimur mínútum fyrir leikslok. Þá urðu þau óvæntu úrslit að FH lagði Breiðablik 3:2 á Kaplakrikavelli. Blikastúlkur halda þó öðru sætinu með 32 stig en Þór/KA hefur 31 stig í þriðja sæti.
-
-
Erfitt að fá fagfólk til starfa á FSA um þessar mundir
laugardagur 4.sep.10 09:14„Þetta er barátta, það er staðreynd að nú gengur hægar en oft áður að fá fagfólk til starfa, einkum lækna, það er langt í frá auðvelt að fá t.d. sérfræðinga af ýmsu tagi," segir Halldór Jónsson forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri. Nýverið hafa þrjár stöður lækna, deildarlæknis við lyflækningadeild, yfirlæknir á dag- og göngudeild lyfjadeildar og sérfræðings í lyflækningum, verið auglýstar lausar til umsóknar en viðbrögð ekki verið mikil.
-
Alþjóðadagur læsis 8. september
laugardagur 4.sep.10 08:41Frá árinu 1965 hafa Sameinuðu þjóðirnar helgað 8. september málefnum læsis. Íslendingar hafa getað boðið börnum sínum tækifæri til lestrarnáms en læsi er nú skilgreint af SÞ sem grunnlífsleikni. Til að viðhalda lestrarfærni þarf að iðka lestur. Þess er vænst að landsmenn íhugi þau lífsgæði sem felast í því að geta lesið og tjáð sig í rituðu máli.
Veðrið
Akureyri
S 1 m/s
12 °C
Reykjavíkurflugvöllur
ANA 5 m/s
15 °C
Vaðlaheiði
m/s
°C
Siglufjörður
Logn 0 m/s
10 °C
Ólafsfjörður
Logn 0 m/s
12 °C
Færð á vegum (NA)
Skoða veðurkort















